Bygginga- og jarðtækni
Bygginga- og jarðtæknideild fellur undir sviðið NMÍ - Tækni hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
Helstu fagsvið eru burðarþol, efnistækni, húsbyggingartækni, hljóðtækni og yfirborðsmeðhöndlun.
Verkefni deildarinnar eru mjög fjölbreytt og er ýmsum aðferðum beitt við úrlausn þeirra, s.s. fræðilegum aðferðum, prófunum á rannsóknastofu, ástandskönnunum og framleiðslueftirliti.
Forstöðumaður er Jón Sigurjónsson.








