Beint á leiðarkerfi vefsins

Innleiðing BIM á Íslandi

Á undanförnu ári hefur fjögurra manna hópur að frumkvæði Framkvæmdasýslu ríkisins unnið markvist að innleiðingu á notkun byggingaupplýsingalíkanna (BIM) í mannvirkjagerð á Íslandi, Hópinn hafa skipað:

Óskar Valdimarsson, Framkvæmdasýslu ríkisins
Hannes Frímann Sigurðsson, Orkuveitu Reykjavíkur
Guðni Guðnason, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Ámundi Brynjólfsson, Reykjavíkurborg - Framkvæmda- og eignasvið

Markmið hópsins er að stofna samstöðu meðal opinberra verkkaupa um notkun byggingaupplýsingalíkana í opinberum framkvæmdum með það fyrir augum að bæta gæði í hönnun og framkvæmdum og lækka líftímakostnað bygginga.

BIMHringurSm.jpg

 

BIM – Samþætt upplýsingalíkan fyrir byggingar

Í desember var formlega stofnað verkefnið BIM-Ísland með þátttöku níu stofnanna sem fjárhagslegra bakhjarla. Áætlanir standa til að ráða starfsmann til að stýra verkefninu og er gert ráð fyrir að hann hefji störf þann 1. mars næstkomandi. Starfsmaðurinn mun vinna með stjórn verkefnisins að innleiðingu BIM og hafa frumkvæði um að kynna BIM aðferðafræðina fyrir byggingariðnaðinum, standa að námskeiðum og ráðstefnum ásamt því að aðstoða verkkaupa, hönnuði og framkvæmdaaðila sem taka upp BIM aðferðafræði í rekstri sínum.

Unnið verður eftir þriggja ára innleiðingaráætlun 2009-2011 sem nú er í mótun og tekur mið af reynslu annara landa sem nú þegar hafa sambærilega stefnu um innleiðslu BIM t.d. Dannmörk, Finnland, Noregur og Bandaríkin.

Kynningarfundur var haldinn þann 17. desember fyrir aðila byggingariðnaðarins um innleiðingu BIM á Íslandi undir fyrirskriftinni “Nýsköpun í byggingariðnaði”. Fundurinn var einstaklega vel sóttur og mættu yfir 220 fulltrúar flestra fyrirtækja og stofnana í byggingariðnaði. Fjögur erindi voru flutt og má sjá glærur flytjenda hér að neðan.

Upplýsingalíkön í mannvirkjagerð - Kynning á hugmyndafræði og stöðu innleiðingar í nokkrum löndum
Óskar Valdimarsson forstjóri, Framkvæmdasýslu ríkisins

Notkun BIM við hönnun mannvirkja
Sigurður Einarsson arkitekt, Batteríið ehf.
Sigurbjartur Loftsson byggingarfræðingur, Batteríið ehf.

BIM – BIPS - Hönnun Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Ólafur Þ. Hersisson arkitekt, Hornsteinar arkitektar ehf

Hvers vegna BIM - Áherslur verkkaupa
Hannes Frímann Sigurðsson deildastjóri fasteingnadeild, Orkuveita Reykjarvíkur

Að verkefninu BIM-Ísland standa eftirfarandi stofnanir:

Brunamálastofnun, Fasteignir ríkissjóðs, Framkvæmdasýsla ríkisins, Íbúðalánasjóður Landsnet, Landsvirkjun, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Orkuveita Reykjavíkur, Reykjavíkurborg, Framkvæmda- og eignasvið og Samtök iðnaðarins.


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica