Efnagreiningar og rannsóknastofa
Efnagreiningardeild Nýsköpunarmiðstöðvar hefur yfir að ráða fullkomnum tækjum til efnagreininga svo sem atómgleypnimælitækjum (AAS), rafgasljósgreini (ICP), rafgasmassagreini (ICP-TOFMS), spýtilitrófsgreini (FIA/SIA), jónagreini (HPLC IC) og kolefnisgreini auk annarra tækja.
Stór þáttur starfseminnar eru efnagreiningar við umhverfisvöktun. Gerðar eru efnamælingar í lofti og úrkomu, vatni og gróðri t.d. F, SO2, SO4-2, NO3- og pH. Efnamælingar í útblæstri frá stóriðju, iðnfyrirtækjum eða sorpbrennslum á t.d. ryki, kolmónoxíði, SO2, NOx, flúor, þungmálmum eða snefilefnum.
Sjá nánar um efnagreiningar hér.








