Efnagreiningardeild
Efnagreiningar Keldnaholti
Efnagreiningardeild Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands er undir sviðinu Íslenskar tæknirannsóknir, framleiðsla, ferlar og orka.
Helstu þættirnir í starfsemi eru almennar efnamælingar tengdar iðnaði og landbúnaði og mælingar tengdar umhverfisvöktun. Einnig eru stundaðar rannsóknir meðal annars á sviði snefilefnagreininga, umhverfismála og efnaferla og veitt ráðgjöf um efnagreiningar og umhverfis- og mengunarmælingar .
Markmið Efnagreiningardeildar er:
· Að niðurstöður séu réttar, óhlutdrægar og sannreyndar og verkefni séu afgreidd innan ásættanlegra tímamarka
· Að deildin hafi yfir að ráða góðum búnaði og hæfu starfsfólki til að sinna efnagreiningaverkefnum á sviði atómgleypnimælinga (AAS), rafgasljósgreininga (ICP), rafgasmassagreininga (ICP-TOFMS), háþrýstijónagreininga (HPLC IC) og spýtigreininga (FIA/SIA)
Gæðatrygging
Til viðbótar almennri gæðastefnu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands leggur deildin áherslu á að tryggja áreiðanleika og óhlutdrægni í mælingum og prófunum og í niðurstöðum þeirra.
Í þessu skyni er lögð áhersla á að:
· Aðstaða og tækjabúnaður sé viðeigandi og búnaði vel við haldið og kvarðaður
· Kunnátta og færni starfsfólks sé nægileg og viðhaldið með þjálfun
· Viðeigandi mæliaðferðir séu notaðar, sannreyndar og uppfærðar þegar við á
· Til séu vottuð viðmiðunarsýni fyrir allar helstu greiningar
· Fullur rekjanleiki sé í skjalavistun og skráningarkerfi
· Starfsemi stofunnar uppfylli alþjóðlega staðla um starfsemi prófunarstofa og
færni sé prófuð með þátttöku í alþjóðlegum samanburðarmælingum
Forstöðumaður er Hermann Þórðarson.








