Efnis- og líftækni
Á sviði efnistækni er unnið að fjölda rannsókna- og tækniyfirfærsluverkefna í þágu atvinnulífsins. Flest verkefnanna eru þverfagleg þar sem unnið er náið með viðskiptavinum að lausn á svið tækni og þróunar allt frá skoðun á einstaka efnisgæðum með örtækni að smíði frumgerða að nýjum vörum eða ferlum. Veitt er tæknileg ráðgjöf og prófanir á einstaka sviðum. Hafið samband við Guðmund Gunnarsson til að fá frekari upplýsingar.
Fyrirtækið Orf líftækni er nú með aðstöðu á Líftæknihúsi á Nýsköpunarmiðstöð og í ársbyrjun 2008 munu fleiri líftæknifyrirtæki bætast í hópinn á frumkvöðlasetri Impru. Það er ásetningur Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands að vinna frekari landvinninga á sviði líftækni. Tækifærin fyrir íslenskt atvinnulíf á þessu sviði eru óþrjótandi. Nýsköpunarmiðstöð Íslands mun nýta sér þverfaglega þekkingu starfsmanna sinna við að móta hagnýt verkefni í samráði við fyrirtæki og vísinda- og rannsókna samfélagið hérlendis og erlendis á þessu sviði.








