Viðburðir
« Fyrra ár Viðburðir árið 2010 Næsta ár »
Sjá viðburði eftir Árum | Mánuðum | Dögum
Orkubóndinn í Eyjum
Dagsetning: 23.3.2010 - Staðsetning: Kaffi Kró Vestmannaeyjum
Orkubóndinn í Eyjum
Áhugamenn um virkjun orku, hvort sem um er að ræða virkjun bæjarlækjar, hitareits, vindgnauðs, sólar eða jafnvel fjóshaugs, geta sótt námskeiðið Orkubóndann sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands stendur fyrir í Eyjum þann 23. mars n.k.
Á námskeiðinu í Eyjum verður sérstök áhersla lögð á virkjun með varmadælum, vindmyllum og einnig með öldum og sjávarföllum.
Orkubóndinn er fyrir áhugafólk um virkjun orku, einstaklinga, fyrirtæki, landeigendur, bændur og alla sem vilja beisla orkuna heima fyrir, en lögð er áhersla á að gera efnið skemmtilegt og aðgengilegt öllum og er námskeiðsgjaldið einungis 3000 krónur. Námskeiðið hefur verið haldið víðsvegar um landið nú þegar og bera góðar viðtökur merki um mikinn áhuga á virkjun orku og sjálfbærni meðal almennings, en alls hafa nú yfir 500 manns sótt námskeiðið.
Orkubóndinn er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Orkustofnunar, Iðnaðarráðuneytisins, Mannvits, Verkís, Ísor og heimamanna víða um land, en námskeiðið verður haldið á níu stöðum í vetur. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar, heimamenn, og sérfræðingar frá Nýsköpunarmiðstöð, Orkustofnun, Ísor og verkfræðistofunum. Í framhaldi af Orkubóndanum eiga þátttakendur kost á að fá aðstoð við að hrinda virkjunarhugmyndum í framkvæmd.
Herferð Orkubóndans um landið lýkur 19. maí þegar haldin verður ráðstefna í Reykjavík þar sem þátttakendur af námskeiðunum koma saman og mun Iðnaðarráðherra veita hvatningarverðlaunin Orkubóndinn.
Námskeiðið í Eyjum verður haldið þann 23.mars n.k. á Kaffi Kró kl. 10:00 - 16:45. Skráning á námskeiðið er á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, http://www.nmi.is/impra/namskeid/orkubondinn/skraningarblad-vestmannaeyjar/ og hjá Frosta Gíslasyni frosti@nmi.is.
Nánari upplýsingar veita:
Þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands s. 522 9000 / 896 5692.
Brynja Sigurðardóttir verkefnisstjóri, brynjasig@nmi.is s. 522 9000 / 691 2404.
Frosti Gíslason, verkefnisstjóri, frosti@nmi.is 522 9440 / 861 5032
Sköpun án landamæra: Ársfundur Nýsköpunarmiðstöðvar
Dagsetning: 11.3.2010 - Staðsetning: Hilton Reykjavík Nordica
Sóknaráætlun fyrir Ísland: Horft til framtíðar fyrir atvinnulíf og samfélag
Dagsetning: 28.1.2010 - Staðsetning: Radisson SAS Saga hótel
Hver eru sóknarfærin í íslensku atvinnulífi? Hvernig getum við aukið lífsgæði og samkeppnishæfni Íslands á komandi árum?
Á ráðstefnunni Sóknaráætlun fyrir Ísland: Horft til framtíðar fyrir atvinnulíf og samfélag þann 28. janúar munu grasrótarhópar, samtök og hagsmunaaðilar fjalla um sóknarfæri og áherslur sem aukið geta lífsgæði og samkeppnishæfni Íslands á komandi árum.
Evrópusamvinna - kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópu
Dagsetning: 14.1.2010 - Staðsetning: Háskólatorg HÍ
Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 14. janúar 2010 kl. 15-18. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs.Sameiginlegur upplýsingavefur landsskrifstofa og þjónustuskrifstofa Evrópuáætlana er evropusamvinna.is. Þar má finna grunnupplýsingar um allar þær áætlanir og styrkjamöguleika sem Íslendingum bjóðast ásamt tenglum í viðeigandi heimasíður. Vefsíðunni er ætlað að vera fyrsti áfangastaður fyrir þá sem hafa áhuga á Evrópusamstarfi, hvort sem það er til að sækja um styrki eða leita sér upplýsinga og þjónustu, en vita e.t.v. ekki alveg hvar þeir eiga að byrja.
Íslendingar hafa aðgang að fjölda Evrópuáætlana í gegnum EES samninginn og hafa verið virkir í Evrópusamstarfi allt frá því hann tók gildi. Í gegnum samstarfsáætlanir Evrópusambandsins er hægt að sækja styrki og stuðning innan flestra sviða menntunar og atvinnulífs og má þar telja áætlanir á sviði menntunar á öllum stigum, menningar, rannsókna og vísinda, jafnréttis, vinnumiðlunar og fyrirtækjasamstarfs. Einstaklingar, skólar, fyrirtæki, stofnanir og samtök finna eitthvað við sitt hæfi á Evrópusamvinnukynningunni á Háskólatorgi.
Þjónusta og áætlanir sem kynntar verða á Háskólatorgi eru:
- 7. rannsóknaáætlun ESB
- Menntaáætlun ESB
- eTwinning rafrænt skólsamstarf
- Evrópa unga fólksins
- Evróvísir - tækifæri fyrir ungt fólk
- EURES - evrópsk vinnumiðlun
- Menningaráætlun ESB
- MEDIA kvikmynda-, sjónvarps- og margmiðlunaráætlun
- Enterprise Europe Network
- Samkeppnis- og nýsköpunaráætlun ESB
- Norðurslóðaáætlun
- NORA - norræna Atlantssamstarfið
- ESPON samstarfsnet um svæðaþróun
- PROGRESS - jafnréttis og vinnumál
- Daphne III - gegn ofbeldi á konum og börnum
- Almannavarnaáætlun
- Norrænt samstarf og styrkir
Orkubóndanámskeið Hótel Hérað Egilsstöðum
Dagsetning: 13.1.2010 - Staðsetning: Hótel Hérað Egilsstöðum
Dagskrá 12. janúar
10:00 Skráning
10:15 Skipulag námskeiðsins
10:20 Endurnýjanlegar orkulindir og aðgengi þeirra á Íslandi. Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
11:00 Orkulindir sem eru lengra undan í tíma. Ingólfur Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri efnis-, líf- og orkudeildar Nýsköpunarmiðstöð Íslands
12:00 Léttar veitingar
12:30 Virkjun vatnsafls. Árni Sigurðsson verkfræðistofu Norðurlands og Jón Snæbjörnsson Verkís
13:30 Jarðvarmi. Ragnar Ásmundsson Ísor
14:20 Gerð eigin eldsneytis. Ingólfur Þorbjörnsson, framkvæmdarstjóri efnis-, líf- og orkudeildar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
15:15 Varmadælur. Reglugerðir og umhverfismál. Sigurður Ingi Friðleifsson Orkustofnun
16:05 Eftirlit og ástandgreiningar vélbúnaðar. Bjarni Ellert Ísleifsson, verkefnastjóri Nýsköpunarmiðstöð Íslands
16.30 Áhugasviðum og viðfangsefnum fundarmanna safnað saman. Undirbúningsvinna fyrir seinni dag byggð á verkefnishugmyndum sem fyrir liggja.
16:45 Lok fyrri dags
Dagskrá 13. janúar
10:00 Skipulagning
10:30 Þátttakendur skipta sér í hópa eftir áhugasviðum og viðfangsefnum undir leiðsögn leiðbeinanda
12:00 Léttar veitingar
13:00 Áframhaldandi hópavinna sem leidd er af leiðbeinendum
13:40 Samantekt vinnuhópa - staða hugsanlegra verkefna og umræður um framhald þeirra undir leiðsögn Þorsteins Inga Sigfússonar.
14:00 Heimsókn til virkjunar á Seyðisfirði: Birkir Þór Guðmundsson Framkvæmdastjóri Íslenskrar Orkuvirkjunar
19. maí verður ráðstefna haldin í Reykjavík þar sem þátttakendur af námskeiðunum koma saman ásamt fagaðilum úr orkugeiranum. Iðnaðarráðherra mun þar veita hvatningarverðlaunin Orkubóndinn.
Nánari upplýsingar gefa: K. Brynja Sigurðardóttir, Brynjasig@nmi.is eða í síma 522 9000







