Fréttir Efnis-, líftækni-, og orkudeild
27.4.2006
MATERA verkefnið forumsókn.
Opnað hefur verið fyrir forumsóknir í ERA (Europeean Research Area) verkefninu MATERA. MATERA er samstarf rannsóknasjóða í 14 löndum í Evrópu auk Ísraels. Þetta verkefnasamstarf hefur áherslu á Efnis og Framleiðslutækni og er núna verið að auglýsa eftir umsóknum um verkefni á fimm lykilsviðum.
Þessi svið eru:
- Production of Materials.
- Mechanical engineering.
- Health and welfare.
- Sustainable Transport systems.
- Building and Construction.
Nánar má lesa um kallið og áherslur þess á vefsetrinu www.matera.fi
Rannís hvetur áhugasama til að kynna sér vel þessa möguleika til verkefnasamstarfs en reiknað er með að Íslenskir umsækjendur sæki til Tækniþróunarsjóðs eða Rannsóknasjóðs um styrk til þátttöku í MATERA verkefnum. Mikil áhersla er lögð á að þetta verkefnasamstarf geti leitt til stærri verkefna og er þá sérstaklega horft til sjöundu rammaáætlunar ESB.
Nánari upplýsingar veita. Ingólfur Þorbjörnsson, ingo@iti.is sími 5707172
Snæbjörn Kristjánsson, skr@rannis.is sími 5155814








