Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Efnis-, líftækni-, og orkudeild

11.4.2008

Styrkur fyrir doktorsnema

Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Verkfræðideild Háskóla Íslands auglýsa til umsóknar styrk fyrir doktorsnema í þrjú ár á sviði líkangerðar og hermunar áraunar í háhitaborholum.

Verkefnið felst í því að þróa FEM-líkan af borholufóðringum. Verkefnið er hluti af rannsóknarverkefni sem nefnist Háhitaborholutækni - Öndvegissetur á Íslandi sem er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands,
HÍ, HR og helstu orkufyrirtækja Íslands. Afraksturinn verður fólginn í einstæðu hermunarkerfi sem sýnir hvernig efnisáraun verður við snögga hitaáraun þar sem sérstaklega er ráðist á svokallaðan gúlp í vinnslufóðringu.
Verkefnið mun veita mikilvæga innsýn í samspil steinsteypu og stáls í borholum og hvernig ólíkir efniseiginleikar, svo sem hitaþenslustuðull, virka á áraun efnisins.

Nánar um Öndvegissetur


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica