Beint á leiðarkerfi vefsins

Matra - útgáfa - næringarefnatöflur

5. útgáfa, gefin út á Netinu 2003 á PDF formi

Í næringarefnatöflunum eru upplýsingar um næringargildi algengra matvæla. Gefin eru gildi fyrir orku, orkuefni, og nokkur vítamín og steinefni. Gögnin eru úr íslenka gagnagrunninum um efnainnihald matvæla (ÍSGEM) en Matra sér um rekstur hans í samstarfi við Manneldisráð Íslands (Lýðheilsustöð).

Næringarefnatöflunum er skipt upp eftir fæðuflokkum. Innan hvers flokks er fæðutegundum raðað í stafrófsröð. Þú velur fæðuflokk með því að smella á einhvern af flipunum hér að neðan. Ef þú ert ekki viss um hvaða fæðuflokk þú eigir að velja, getur þú leitað í listanum yfir allar fæðutegundir. Þar er fæðutegundum raðað í stafrófsröð og sýnt í hvaða töflum eigi að leita.

Athugaðu að fyrir hvern fæðuflokk eru nokkrar töflur. Fyrst birtast upplýsingar um orku, orkuefni og önnur meginefni en þú þarft að fara á næstu síðu til að sjá gildi fyrir nokkur vítamín og steinefni í sömu fæðutegundum.

Gildin í töflunum eru viðmiðunargildi því samsetning flestra matvæla getur verið nokkuð breytileg.  Athugasemdir eru vel þegnar. Þú getur sent athugasemdir þínar á netfangið olafurr@iti.is

1.   Mjólk, mjólkurvörur
2.   Ostar
3.   Ís
4.   Kornmatur, brauð og kökur
5.   Grænmeti og kartöflur
6.   Ávextir, ber, hnetur og fræ
7.   Kjöt og kjötvörur. Fuglakjöt
8.   Fiskur, fiskafurðir og skeldýr
9.   Egg og eggjavörur
10. Feitmeti: smjör, smjörlíki, olíur o.fl
11. Sykur, hunang og sælgæti
12. Drykkir, nema mjólkurdrykkir
13. Matarsalt, edik, ger, krydd og kraftur
14. Snakk: poppkorn, flögur o.fl.
15. Sósur, súpur og áleggssalöt
16. Tilbúnir réttir
17. Fæðubótarefni, næringardrykkir, sérfæði

Listi yfir allar fæðurtegundir.


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica