Ritaskrá Matra
Ritaskrá Matra 1977 - 2002
Nú eru liðin 26 ár frá því að matvælarannsóknir hófust á Keldnaholti. Upphaf starfseminnar má rekja til 1. janúar 1977 en þá var fæðudeild RALA stofnuð. Matvælatæknideild Iðntæknistofnunar var stofnuð árið 1983 en þessar deildir voru svo sameinaðar árið 1998 í Matvælarannsóknir Keldnaholti (Matra). Bæði RALA og Iðntækistofnun standa að rekstrinum en starfsemin er í húsi Iðntæknistofnunar.
Á árinu 2002 var hafist handa við að taka saman ritaskrá yfir útgefið efni áranna 1977-2002. Alls eru 426 verk í ritaskránni, þar af eru 174 skýrslur, 106 greinar í innlendum ritum, 23 fréttabréf, 7 handbækur, 42 skýrslur úr alþjóðlegum verkefnum, 38 ritrýndar vísindagreinar og 36 önnur verk á ensku.
Hægt er að skoða ritaskrána með því að smella hér.







