Beint á leiðarkerfi vefsins

Verkefni

Rannsóknaverkefni Matra

Hér að neðan er listi yfir rannsóknaverkefni hjá Matra.  Listinn er ekki tæmandi og ekki koma fram verkefni sem unnin voru fyrir fyrirtæki án utanaðkomandi styrkja

Kjöt og kjötafurðir
Háþrýstimarinering
Súrsun
Lambaþræðir
Angus og Limousin
Marinering
 
Grænmeti
Bætt gæði grænmetis
Gæði grænmetis
 
Hollusta og efnainnihald
EuroFIR
Gagnagrunnur um efnainnihald matvæla
Hreinleiki landbúnaðarafurða
Saltnotkun
COST 99
Hákarlabrjósk
Sjávarafurðir
Síld
Reyktur lax
Marinering
Hágæðagelatín
Bætt nýting í rækjuiðnaði
Saltfiskur
Reyking á laxi
Gæðamat á laxi
Fiskgelatín
 
Matvælatækni
Örhúðað lýsi
Háþrýstimarinering
Myndbygging
Rafpúlsar
Örhúðun viðkvæmra efna

Innlend rannsóknaverkefni eru mjög stór hluti af starfsemi Matvælarannsókna Keldnaholti. Fyrst og fremst er um að ræða samstarfsverkefni við fyrirtæki í matvælaiðnaði, rannsóknastofnanir og háskóla. Verkefnin eru yfirleitt fjármögnuð af innlendum sjóðum og vega þar þyngst sjóðir Rannís og Framleiðnisjóður landbúnaðarins. Samstarfsaðilar koma einnig að fjármögnun að einhverju leyti en einnig er mögulegt að þau séu eingöngu fjármögnuð af fyrirtækjum. Markmið verkefnanna er yfirleitt að leysa einhver tæknileg vandamál, sem fyrirtækin hafa ekki aðstöðu eða sérþekkingu til að leysa sjálf. Stefnt er að því að árangur verkefnanna skili sér til fyrirtækjanna innan tveggja til fjögurra ára. Eitt og eitt verkefni er ekki unnið í samstarfi við fyrirtæki, en þá er fyrst og fremst um að ræða uppbyggingu þekkingar eða hæfni á ákveðnum sviðum.

Erlend rannsóknaverkefni eru einnig mjög mikilvægur þáttur í starfseminni. Með þátttöku í slíkum verkefnum gefst sérfræðingum Matvælarannsókna tækifæri til þess að starfa náið með fremstu sérfræðingum Evrópu á einstökum afmörkuðum sviðum. Samstarfið leiðir til þess að ný þekking og tækni er flutt til landsins og miðlað til matvælafyrirtækja. Verkefni þessi standa yfirleitt í þrjú til fjögur ár og eru samstarfsverkefni aðila frá tveimur eða fleiri löndum. Á sviði matvælatækni hefur Iðntæknistofnun einkum tekið þátt í norrænum verkefnum, sem fjármögnuð eru af Norræna iðnaðarsjóðnum svo og Evrópuverkefnum, sem fjármögnuð eru af Evrópusambandinu. Í dag eru Matvælarannsóknir Keldnaholti í samstarfi við fjölmörg fyrirtæki og stofnanir í Evrópu í slíkum verkefnum.


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica