Beint á leiðarkerfi vefsins

Matra - verkefni - næring - hákarlabrjósk

Duft úr hákarlabrjóski

Heiti verkefnis:   Duft úr hákarlabrjóski
Verkefnisnúmer:   1RH7001
Verkefnisstjóri:   Ásbjörn Jónsson
Upphafsár:   1993
Lokaár:   1997
Fjármögnun:   Tæknisjóður Rannís og Þátttakendur
Samstarfsaðilar:   Pharmaco hf. og Lýsi hf.

Lýsinga á verkefni

Markmiðið með verkefninu, var annarsvegar að þróa vinnsluferli fyrir duft úr hákarlabrjóski, með vel skilgreinda eðlis- og efnafræðilega eiginleika og hinsvegar að kanna magn á virkum efnum í duftinu með því að mæla heildarmagn kondróítínsúlfats og magn kondróítínsúlfats A og C. Þetta eru fjölsykrur (mucopolysaccharide), sem eru þekktar fyrir bólgueyðandi áhrif á ýmsa sjúkdóma eins og liðagigt, lúpus og psoriasis.

Mælt var magn kondróítínsúlfats í brjóski í haus, sem var hreinsaður með mismunandi aðferðum.

Brjóskið vegur 6-8% af heildarþunga hákarls. Hlutfall brjósks skiptist þannig milli hauss, hryggs og ugga: Haus inniheldur 3,5-4,0% brjósk, hryggur 2,1-2,6% og uggar 1,2-1,6%.

Einstakar vinnslueiningar í framleiðslu á dufti úr hákarlabrjóski eru: Hreinsun holds af brjóskinu, þurrkun, mölun og pökkun. Ýmsar aðferðir hafa verið prófaðar við hreinsun á brjóskinu (kjöt og himnur hreinsað af) s.s. hreinsun með heitu vatni, háþrýstiþvotti og ensímum. Hreinsun með heitu vatni kemur best út með tilliti til kostnaðar.

Notaðar hafa verið tvær þurrkunaraðferðir, frostþurrkun og blástursþurrkun. Þar sem frostþurrkun er mjög dýrt ferli þá hefur verið notuð blástursþurrkun í ofni með góðum árangri.

Helsta vandamálið í verkefninu hefur verið mölun á brjóskinu í duftform. Erfitt hefur reynst að finna heppilega kvörn til mölunar, sem uppfyllir kröfur um kornastærð á lokaafurð. Eitt fyrirtæki framleiðir slíka kvörn en hún er framleidd fyrir rannsóknastofur og hefur þar af leiðandi litla afkastagetu.

Verkefni þetta hófst árið 1993 og lauk árið 1997.

Heildarfjöldi verkaðra hákarla á Íslandi er 800-900 stykki á ári og er talið að öðru eins sé fargað í hafið af sjómönnum. Ef miðað er við að 600 hákarlar fáist í framleiðslu á hákarladufti og nýting er um 10% eftir þurrkun og mölun, má gróflega áætla að ársvelta framleiðslunnar sé um 50 milljónir kr. Þessar upplýsingar gefa ákveðna hugmynd um verðmæti afurðarinnar.


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica