Beint á leiðarkerfi vefsins

Ráðstefnur

Á næstunni:                                                                                                                        

4th Rodding Conference 15-17 April 2008
Fjórða ráðstefnan um skautsmiðjur álvera verður haldin dagana 15. - 17. apríl 2008 á Grand Hótel í Reykjavík. Iðntæknistofnun, Málmgarður og fyrirtækið DMG World Media í Bretlandi hafa staðið að ráðstefnunni sem haldin var árið 2001, 2003 og 2005. Síðustu ráðstefnu sóttu 135 ráðstefnugestir frá 20 löndum og óhætt er að segja að Rodding ráðstefnan hafi skipað sér stóran sess í faginu á alþjóðlegum vettvangi.

Nánari upplýsingar er að finna á www.rodding-conference.is


 

Eldri ráðstefnur 

3d International Conference and Workshop on Anode Rodding Plants for Primary Aluminium Smelters

Iðntæknistofnun, Málmgarður og útgáfufyrirtækið DMG í Bretlandi stóðu að þriðju ráðstefnunni um skautsmiðjur álvera dagana 21. - 23. september 2005. Var ráðsefnan haldin á á Nordica Hótel og var hin glæsilegasta í alla staði. Á hana komu komu 135 gestir frá 20 löndum.

Örtæknidagar

Dagana 3.-4. desember 2003 stóðu Samtök Iðnaðarins, RANNÍS og Iðntæknistofnun fyrir ráðstefnu um örtækni og styrktaráætlun ESB um Efnis-, framleiðslu og örtækni.

Nordic Hydrogen Seminar.

Dagana 12-13 nóvember 2003 var haldin samnorræn ráðstefna um vetnistækni hér á landi.  Megináhersla þessarar námsstefnu var að auka tengsl innan Norðurlandanna í vetnisrannsóknum og þá sérstaklega tengsl milli Íslands og Noregs.  Til landsins komu yfir 60 vísindamenn, prófessorar og doktorsnemar af þessu tilefni.

Ráðstefna um vetni - Making hydrogen available to the public

Iðntæknistofnun tekur þátt í verkefninu ECTOS um vetnisvagna á Íslandi. Hluti af verkefninu fólst í að reisa og reka vetnisstöð sem þjónaði þremur strætisvögnum sem ekið hafa á götum Reykjavíkur. 24. apríl 2003 var vetnisstöðin formlega opnuð og í tilefni af því var haldin alþjóðleg ráðstefna um vetni.

 


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica