Öndvegissetur í háhitaborholutækni
Öndvegissetur í háhitaborholutækni er samstarfsverkefni helstu hagsmunaaðila á sviði háhitaborholna á Íslandi.
Íslendingar hafa verið í fararbroddi þeirra sem nýta jarðhita til orkuöflunar og hafa hafið útrás með þessa þekkingu sem veganesti. Í verkefninu verður leitast við að auka við þennan þekkingargrunn með markvissum hætti, þannig að uppbygging háhitaborholna, rekstur og viðhald þeirra sé betur skilið, með það fyrir augum að auka endingu borholna og þar með stuðla að arðsemi af rekstri jarðhitavera.
Þátttakendur eru Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, ÍSOR, Keilir, Jarðboranir, Orkuveita Reykjavíkur, Hitaveita Suðurnesja og Landsvirkjun.
Verkefnisstjóri er Ingólfur Örn Þorbjörnsson á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Sigrún Nanna Karlsdóttir sérfræðingur starfar einnig við verkefnið á Nýsköpunarmiðstöð. Ólafur Wallevik forstöðumaður steinsteypudeildar á Nýsköpunarmiðstöð og prófessor verður leiðbeinandi meistaranema í steinsteypufræðum við HR sem tengjast munu verkefninu. Magnús Þór Jónsson verður leiðbeinandi doktorsnema í HÍ.








