Beint á leiðarkerfi vefsins

Málmtækni

Efnis-, líftækni og orkudeild Nýsköpunarmiðsöðvar Íslands leggur áherslu á að stunda rannsóknir og þróun í málmtækni í samvinnu við aðrar stofnanir, háskóla og fyrirtæki. Megináhersla síðustu ára hefur verið á sviði léttmálma, þ.e. áls, magnesíum og títan. Starfsmaður Málmgarðs hefur tekið virkan þátt í að koma á laggirnar og þróa ráðstefnu um skautsmiðjur álvera sem verður haldin í Reykjavík í fjórða skipti árið 2008. 

Nemendum og kennurum framhaldsskóla hefur verið boðið í heimsókn á svokallaðan léttmálmadag, þar sem ýmis atrið í sambandi við léttmálma hafa verið kynnt og einnig aðstaða til rannsókna og prófana hér á Iðntæknistofnun. Seinni hluta dagsins hafa gestirnir farið í heimsókn í álver Alcan á Íslandi hf. í Straumsvík og Málmsteypuna Hellu í Hafnarfirði.

Unnið er að rannsóknum á seigjárni í samvinnu við Málmsteypu Þorgríms Jónssonar ehf. og er verkefnið styrkt af Rannís. Viðfangsefnið er útfærsla á aðferð sem gerir kleift að styrkja hluti úr seigjárni á völdum stöðum (Staðbundin styrking seigjárns). Með því er hægt að auka líftíma hlutanna með því að styrkja þá staði sem verða fyrir mestri áraun. Sótt hefur verið um einkaleyfi á aðferðinni.  

Einnig er í gangi verkefni með Málmsteypunni Hellu þar sem unnið er að endurbótum á útsteypingu á álbronsi í þeim tilgangi að auka efnisgæði.

 

 


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica