Beint á leiðarkerfi vefsins

Vetnissamfélagið

Vetnissamfélagið Ísland

 

Nýsköpunarmiðstöð íslands vinnur rannsókna- og þróunarverkefnum þar sem innlend og umhverfisvæn orka kemur í stað olíu og bensíns. Meðal þessara verkefna eru “Ectos” og “Natríumbórvetni til geymslu vetnis”. Þessum verkefnum er lýst frekar hér að neðan.

ECTOS - Vetnisvagnar í Reykjavík

ECTOS verkefnið er fólgið í rekstri á vetnisstöð og akstri strætisvagna sem ganga fyrir vetni og eru drifnir með efnarafölum. Jafnframt fara fram mælingar á umhverfisáhrifum og kannanir á viðtökum almennings við þessari nýjung.

Mat Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á umhverfisáhrifum

Nýsköpunarmiðstöðin vinnur einkum að umhverfisþætti verkefnisins með athugun á umhverfisáhrifum vagnanna og samanburði við aðra orkugjafa. Skoðað er hvernig vetnisvæðing getur breytt loftgæðum í borginni til lengri tíma litið.

Náin samvinna er við önnur tilraunaverkefni á þessu sviði sem eru í gangi í Evrópu. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna hér.

Natríumbórvetni til geymslu vetnis

Stöðugt er verið að leita hentugra geymsluaðferða vetnis (H2)  og er natríumbórvetni (NaBH4) áhugaverður kostur vegna þess hversu meðfærilegt og hættulaust það er.

Nýsköpunarmiðstöð Íslands þróar framleiðsluferli

Í verkefninu er þekking Íslendinga á endurnýjanlegum orkugjöfum og efnaferlum nýtt til hönnunar framleiðsluferlis á natríumbórvetni. Unnið er með bandaríska hugmynd og framleiðslan aðlöguð íslenskum aðstæðum. Sérstaklega er horft til notkunar gufuaflsvirkjana í þessu tilliti. Auk þess er þróuð endurhleðsluaðferð á bórnum með tilliti til íslenskra aðstæðna, þar sem NaBO2 er breytt í NaBH4. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna hér.


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica