Málmsuðu og efnisgæði
Málmsuðu og efnisgæði
|
Hljóðbylgjutæki, Krautkrämer. Notað til skaðlausra prófana (NDT). Mælir formgalla í efni og málmsuðu, staðsetningu galla og stærð þeirra. Hentar til prófana á suðum í efnisþykktum frá uþb. 8mm. Einnig notað til prófunar á lagskiptum í efnum. Prófanir á: Stáli, áli, ryðfríum efnum ofl.
|
|
|
Röntgentúpa, ERESCO 200kV. Notuð til skaðlausra prófana NDT. Mælir formgalla í efni og málmsuðu, staðsetningu galla og stærð þeirra. Hentar vel til röntgenmyndunar á suðum í efnisþykktum undir 25mm, en einnig þykkari efnum. Prófanir á: Stáli,áli, ryðfríum efnum ofl.
|
|
|
Tæki til segulagnaprófunar. Til prófunar á göllum á yfirborði segulmagnanlegra efna. Hentar vel til sprunguleitar á málmsuðum. Sprunguleit á ósegulmagnanlegum efnum, er framkvæmd með litarprófunarbúnaði sem einnig er til staðar á ITI. stikkorð: tjónagreining sprunguleit |
|








