Þrýsitþol og hitameðhöndlun
Þrýstiþol og hitameðhöndlun
|
Togþolstæki (SinTec ReNew). Notað til prófana á brotstyrk við efnisprófanir og vöruprófanir.
Þrýstiþolsprófar með 100kN eða 5kN átaksmælum (10 og 0,5 tonna). Klassa 1 tæki, þ.e. hámarksskekkja < 1% án notkunar leiðréttingataflna.
|
|
|
Til þrýstiprófunar fyrir plaströr á bilinu 0-60 bör við mismunandi hitastig í vatnsbaði. Búnaðurinn heldur föstum vatnsþrýstingi í rörunum þrátt fyrir að rörin tútni í prófuninni. Hitabaðið heldur föstu hitastigi á bilinu 10-95°C
Prófanir eru framkvæmdar skv. stöðlunum ISO 1167, EN 921 eða DIN 53759
|
|
|
Átóklafi, 20 l. Hægt er að hita innihaldið í allt að 350°C og 150 bar þrýsting. Velja má um hvort hrært er í eða ekki. |
|
|
Átóklafi, 2 l. Hægt er að hita innihaldið í allt að 350°C og 300 bar þrýsting. Velja má um hvort hrært er í eða ekki. |
|
|
Jafnásaþjappa (cold isostatic press). Þjöppun á ýmsum sýnum með jöfnum þrýstingi úr öllum áttum við stofuhita. Sýni þurfa að vera í móti eða vatnsheldum umbúðum (eftirgefanlegum). Hægt að nota til að þjappa málm-eða keramikdufti, og til ýmis konar þrýstiprófana og til þrýstimeðhöndlunar, s.s. á matvælum. Innra þvermál 7 cm. Hámarksþrýstingur er 4000 bar.
|
|
|
Hraðvirkur tölvustýrður háhitaofn. Hámarkshiti 1700°C, hitastýring í ofni: ±2°C rými:HxBxD=16x16x27cm.
|
|








