Tog-, hörku- og höggstyrkur
Tog-, hörku- og höggstyrkur
|
Togþolstæki: notuð til prófana á styrk og stífni við efnisprófanir og vöruprófanir. Hægt er að mæla togþol, flotmörk, toglenging, beygjubrotþol og sveigjufjaðurstuðill. Togþolsprófanir í báðar áttir, tvennskonar togþolstæki eru til: fyrir hátt álag (SinTec ReNew, svið: 500N-100kN) og fyrir lægra álag (MTS Insight 10SL, svið:2.5N-10kN, hámarksskekkja < 1% án notkunar leiðréttingataflna) Prófað er m.a. skv. stöðlunum EN ISO 178, EN ISO 527, ASTM D 638, EN 10002. |
|
|
Höggprófunartæki (falling weight) til höggþolsmælinga á plasti, bæði til efnisprófana á tilsniðnum plötum og til vöruprófana. Hefur mest verið notað til höggprófana á plaströrum og efni fyrir hverfisteypu. Mesta fallhæð er 2 metrar og mesta þyngd 25 kg. Búnaðurinn uppfyllir kröfur staðlanna EN 6603-1, EN 1411, ASTM 1998 og ARM staðal um höggþol á hverfisteyptu efni.
|
|
|
Höggprófunartæki (falling dart) til höggþolsmælinga á plastfilmum. Mismunandi þyngd eru látinn falla á plastfilmuna þar sem hún er strekkt á hring með 5” þvermál. Prófanir eru framkvæmdar skv. staðlinum ASTM D 1709. |
|
|
MFL-Systeme/Charpy höggþolstæki ásamt hitastýribúnaði fyrir hitastig á bilinu –80°C til 40 °C (DIN 12 879. Klasse 2). Fylgir þýskum staðli DIN 51 222, Tests on notched bar impact-bending sýni skv. DIN 50 115 og impact-transverse test skv. DIN 50 116. Hámarks höggorka 150 J. Notað til að mæla höggþol sem fall af hitastigi, t.d. skiptihitastig stáls.
|
|
|
EquoTip er færanlegur hörkumælir fyrir hörku á breiðu bili, í allar stefnur og á annars erfiðum stöðum. Getur skilað aflestri skv. Vickers (HV), Brinell (HB), Rockwell (HRC,HRB,HRA) og Shore (HS). Nýtist til mælinga á flestum gerðum af stáli ásamt áli, kopar, koparzink-, kopartin- og álbrons-blöndum.
|
|
|
Vickers hörkumælirinn mælir hörku skv. ÍST EN ISO 6507-1&2 1997 á kvarðanum HV20 (GRE 1693a).
|
|
|
Brinnel hörkumælir er notaður til mælinga á efnum sem hafa grófari strúktúr eins og t.d. seigjárn. Mælir í samræmi við ISO6506-1&2 1999 HBW 10/3000 á bilinu 66.8-1464
|
|
|
Harka gúmmís Shore A durometer hörkumælir (IHR) er notaður til mælinga á hörku gúmmís og gúmmímjúkra plastefna. Mælir í samræmi við EN ISO 868 og ASTM D 2240
|
|








