Efnis og umhverfistæknideild
Efnis-, líftækni og orkudeild Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands er hluti af sviði miðstöðvarinnar, Íslenskar tæknirannsóknir.
Áhersla Efnis-, líftækni og orkudeildar er að taka þátt í rannsóknarverkefnum til að auka þekkingu og færni íslenskt samfélags á þeim rannsóknasviðum sem tilgreind eru á hverjum tíma, í öðru lagi vinnum við að stöðugri tækniþróun til að koma þekkingunni út í atvinnulífið, í þriðja lagi veitir deildin ráðgjöf til að leiðbeina um notkuná tækni og síðast en ekki síst stundum deildin prófanir til að veita óháða þjónustu um efnisgæði og umhverfisáhrif.
Markmið Efnis-, líftækni og orkudeildar er:
- Að vera fremst á Íslandi á völdum sviðum innan efnis- og umhverfistækni.
- Áherslur og verksvið deildarinnar skulu á hverjum tíma endurspegla þörf íslensks iðnaðar fyrir þjónustu, rannsóknir og þróun á sviði efnis- og umhverfistækni. Ráðgjöf skal stuðla að betra efnisvali, vandaðri framleiðslu og hagvæmni.
- Á hverju áherslusviði myndar deildin hóp sérfræðinga og aðstoðarmanna sem leysa vandamál í samvinnu, bæði sín á milli og í samvinnu við iðnaðarfyrirtæki.
- Mörg verkefni eru einnig unnin í erlendu samstarfi í því augnamiði að auka tengsl og þekkingu íslenskra fyrirtækja út á við.
|
Áherslusvið Efnis- og umhverfistæknideildar | |
|
Efnatækni |
Málmtækni |
|
Plasttækni |
Málmsuðutækni |
|
Tjónagreiningar og prófanir |
Umhverfis og orkutækni |
|
Frumgerðasmíð |
Vetnissamfélagið |
|
Vegmerkingar |
|







