Enterprise Europe Network
Enterprise Europe Network er gríðaröflugt samstarfsnet Evrópusambandsins, sett á laggirnar í byrjun árs 2008. Evrópumiðstöð ber ábyrgð á starfsemi þess á Íslandi en samstarfsaðilar eru Rannís og Útflutningsráð. Markmið Enterprise Europe Network er að styrkja hæfni lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Evrópu til nýsköpunar og leiða saman þekkingu tækni og fólk. Það rennir stoðum undir aukna samkeppnishæfni Evrópu. Sjá nánar
Sjávarútvegssýningin European Seafood Exposition 2010
Sjávarútvegssýningin European Seafood Exposition 2010 verður haldin í Brussel dagana 27.-29. apríl nk. Á sýningunni í ár verður skipulagt fyrirtækjastefnumót og býðst fyrirtækjum þannig aðstoð við að finna mögulega samstarfsaðila og skipuleggja hálftíma viðskiptafundi fyrirfram.
Á vegum Enterprise Europe Network hefur nú verið opnað sérstakt vefsvæði í tengslum við sýninguna þar sem sýnendur og sýningargestir geta skráð sig og komið upplýsingum um sig og fyrirtæki sín á framfæri við aðra þátttakendur. Þar er svo hægt að skoða upplýsingar um önnur fyrirtæki og óska eftir fundum.
Býr kvikmyndagerðarmaður í þér?
Viltu selja þína tækni - eða þarftu tækni sem nýtist þér
Þú getur nálgast nýja tækni erlendis frá eða selt þína tækni eða þekkingu úti í hinum stóra heimi. Þetta er hægt að gera gegn um Enterprise Europe Network.








