Beint á leiðarkerfi vefsins

EUREKA

EUREKA

Evrópusamstarf á sviði tækni og iðnþróunar – EUREKA

Ísland gerðist aðili að EUREKA samstarfinu árið 1986. Nýsköpunarmiðstöð Íslands sér um aðild Íslands að áætluninni  í umboði Iðnaðarráðuneytisins og rekur EUREKA skrifstofu á Íslandi.  Ítrekaðar kannanir þykja hafa sýnt að EUREKA-áætlunin hafi skilað umtalsverðum árangri fyrir evrópskan iðnað og að reynsla þátttakenda hafi yfirleitt verið jákvæð. Hugmyndafræðin um sveigjanlegt samstarf sem fyrirtæki leiða, en stjórnvöld hvetja fjárhagslega og með ýmsum aðgerðum, hefur mælst mjög vel fyrir. Ákvarðanir eru einfaldar og lausar við skrifræði. Formleg svör um samþykkt verkefna fást fljótt ef aðilar frá a.m.k. tveim löndum koma sér saman um verkefni. Margvísleg alþjóðleg kynning fer fram á einstökum verkefnum og fyrirtækjum sem að þeim standa og getur það komið sér afar vel fyrir lítil nýsköpunarfyrirtæki. Lítil og meðalstór fyrirtæki hafa fengið sérstaka athygli í EUREKA og fer verkefnum með aðild þeirra fjölgandi. Það er þó tekið fram að fjárhagslegur stuðningur hins opinbera er talinn afgerandi fyrir áhuga og þátttöku fyrirtækja í EUREKA-áætlunum. Flest EUREKA-lönd hafa haft umtalsverða sjóði sem sérstaklega styðja EUREKA-verkefni.

Sótt er um íslenska þátt Eureka verkefnis til Tækniþróunarsjóðs umsóknarfrestur er til 15. febrúar og 15 september.  Umsóknir um íslenska þáttinn er metin af fagráði Tækniþróunarsjóðs og skulu umsóknir hlíta reglum Tækniþróunarsjóðs

Frekari upplýsingar: http://www.eurekanetwork.org/              

Nánari upplýsingar um EUREKA veitir:
Snæbjörn Kristjánsson, verkfr. landsfulltrúi Eurostars og Evreka (NPC)
Rekstrarstjóri rannsókna og þróunar, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Sími: 522 9000 Beint: 522 9372
Netfang: skr@nmi.is 


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica