Opnað hefur verið fyrir ný köll innan "Intelligent Energy Europe"
04. janúar 2012
Evrópusambandið hefur sett fram metnaðarfull markmið hvað varðar
hreina og örugga orku fyrir Evrópubúa í framtíðinni. Til að ná
þessum markmiðum er mikilvægt að ný þekking og ný tækni nái
útbreiðslu á markaði. Verkefnið Intelligent Energy Europe er sett á
laggirnar til að auka möguleika á því.
Opnað hefur verið fyrir ný köll innan þess til að þróa
tækninýjungar í tengslum við endurnýjanlega orku. Verkefnið hefur
þrjú meginmarkmið:
- Kynning á orkunýtni og að hvetja til skynsamlegrar nýtingar
orku
- Ýta undir notkun nýrra orkugjafa og hvetja til fjölbreytni í
orkunotkun
- Stuðla að meiri orkunýtingu í flutningum
Hér má nálgast
nánari upplýsingar um Intelligent Energy Europe og um köllin sjálf
hvernig eigi að sækja um
Intelligent Energy Europe tilheyrir Samkeppnisáætlun
Evrópusambandsins og tengiliður þess er Sigurður Ingi Friðleifsson
hjá Orkustofnun - sif@os.is