Áhættureiknir fyrir aldraða hlýtur Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2012
14. febrúar 2012
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands
2012 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 14.
febrúar.
Verkefnið sem hlaut verðlaunin að
þessu sinni heitir Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma
hjá öldruðum og var það unnið af Vilhjálmi Steingrímssyni, nemanda
í læknisfræði við Háskóla Íslands. Leiðbeinendur hans í verkefninu
voru Thor Aspelund og Vilmundur Guðnason hjá Hjartavernd.
Verkefnið gekk út á að útbúa tól sem aðstoðar við mat á áhættu á
hjartaáföllum til skamms tíma hjá öldruðum og gefur þannig tækifæri
til markvissra forvarna fyrir þann aldurshóp. Slík tól eru ekki
aðgengileg í Evrópu í dag. Kransæðasjúkdómar eru ein helsta orsök
alvarlegs heilsubrests hjá öldruðum og kostnaður við lyf og
þjónustu sem fylgir hjartaáföllum er mikill. Með því að seinka eða
koma í veg fyrir alvarlegar afleiðingar kransæðasjúkdóms má bæta
lífsgæði aldraðra og einnig létta af heilbrigðiskerfinu. Í
verkefninu er leitast við að finna þætti með forspárgildi sem
einstaklingar geta sjálfir haft árhrif á, eins og reykingar,
hreyfingu, blóðfitu og blóðþrýsting (með bættu mataræði), sem og að
búa til tæki fyrir heilbrigðisstarfsfólk til að styðjast við í
fyrirbyggjandi starfi hvað varðar hjarta- og kransæðasjúkdóma meðal
aldraðra.
Það var mat dómnefndar að þetta
verkefni hefði til að bera alla þá eiginleika sem lagðir voru til
grundvallar við mat á verkefnum. Þannig gæti það leitt til
nýsköpunar, hagnýtingarmöguleikar þess væru miklir og það stuðlaði
vel að samstarfi háskóla, stofnanna og fyrirtækja, auk þess sem
sjálfstætt framlag nemenda var mikið. Verkefnið er vel unnið, mjög
áhugavert og vekur okkur til umhugsunar um lífsgæði aldraðra.
Sjá frétt í heild á heimasíðu Rannís
- hér