Kynna stuðning og styrki í Hafnarhúsinu í kvöld
16. febrúar 2012
Bjarnheiður Jóhannsdóttir og
Guðmundur Óli Hilmisson, verkefnisstjórar hjá Nýsköpunarmiðstöð
Íslands munu kynna þjónustu Nýsköpunarmiðstöðvar íslands og
helstu styrki og stuðningsmöguleika sem standa til boða í kvöld,
fimmtudaginn 16. febrúar í Hafnarhúsinu. Kynningarfundurinn er
hluti af fyrirlestraröð Hönnunarmiðstöðvar, Listaháskólans og
Listasafns Reykjavíkur.
Sérstök áhersla verður lögð Átak til
atvinnusköpunar, sem er styrkáætlun fyrir nýsköpunarverkefni
og
markaðsaðgerðir starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja.
Næsti umsóknarfrestur fyrir Átakið er 1. mars 2012. Nánari
upplýsingar um Átakið er að finna
hér