Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Átaki til atvinnusköpunar
10. febrúar 2012
Iðnaðarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
verkefninu Átaki til atvinnusköpunar en verkefnið veitir styrki til
nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla og
nýsköpunarfyrirtækja.
Markmið verkefnis er að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á
fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta
og að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða í
frumkvöðla- og sprotafyrirtækjum.
Styrkir geta að hámarki numið 50% af heildarkostnaði
verkefnisins og ekki eru veittir styrkir til fjárfestinga s.s.
tækjum og búnaði. Umsóknarfrestur er til og með 1. mars
2012.
Frekari upplýsingar og rafræn eyðublöð má nálgast með því
að smella
hér. Einnig má senda beiðni um upplýsingar og aðstoð á
netfangið johanna@nmi.is.