Flugklasinn - Air66
17. mars 2012
Forsvarsmenn flugklasans AIR 66N
hafa háleitar hugmyndir um fjölgun ferðamanna á Norðurlandi.
Stefnan hefur verið sett á að koma á reglulegu millilandaflugi um
Akureyrarflugvöll allt árið um kring með tilheyrandi tækifærum
fyrir ferðaþjónustuaðila á Norðurlandi.
Framundan er vinna við að
markaðssetja og kynna Akureyrarflugvöll sem nýjan áfangastað fyrir
millilandaflug. Markmiðið er að fjölga erlendum ferðamönnum á
Norðurlandi árið um kring og ekki síður að lengja dvöl þeirra á
svæðinu. Í tengslum við flugklasann er mikil áhersla lögð á
nýsköpun og vöruþróun í þjónustu við ferðamenn á Norðurlandi auk
markvissrar kynningar á þeirri þjónustu sem nú þegar er til
staðar.
Flugklasinn er samstarfsverkefni
fyrirtækja í ferðaþjónustu, sveitarfélaga, stofnana og annarra
hagsmunaaðila. Verkefnið hóf sig til flugs fyrir um ári síðan með
stuðningi Isavia, Akureyrarbæjar, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands,
Markaðsstofu Norðurlands og atvinnuþróunarfélaga á svæðinu.