nmi.is - fréttir

Mikil erlend eftirspurn í íslensk sumarhús
Mikil aukning hefur orðið á bókunum sumarhúsa á Íslandi meðal erlendra ferðamanna. Sprotafyrirtækið Búngaló er eitt af þeim fyrirtækjum sem nýtur góðs af því og á mögulega stóran þátt í því að koma á skilvirku viðskiptasambandi milli sumarhúsaeigenda og erlendra ferðamanna.

Fjöldi sumarhúsa á Íslandi er á skrá hjá Búngaló

Fyrirtækið Búngaló sérhæfir sig í að aðstoða íslenskar fjölskyldur við að leigja út sumarhús sín og hefur fyrirtækið upplifað nýtt mánaðarlegt sölumet síðustu fjóra mánuðina og stefnir maí einnig í að vera metmánuður. Þannig er velta fyrirtækisins þrefalt hærri núna en sem nemur veltu á sama tímabili í fyrra. Í dag koma um það bil 60% af núverandi bókunum erlendis frá en þegar vefsíðan fór fyrst í loftið 2010 voru notendur nær eingöngu íslendingar. „Ferðamenn virðast almennt séð vera mjög spenntir fyrir því að upplifa alvöru íslensk sumarhús og kynnast þannig bæði íslenskri náttúru og menningu“ segir Haukur Guðjónsson stofnandi Búngaló. Mikið af sumarhúsunum, sem eru á skrá hjá Búngaló, eru nú þegar orðin fullbókuð fyrir sumarið og því augljóst að mikil tækfæri búa þarna fyrir íslenskar fjölskyldur til að skapa sér tekjur af útleigu sumarhúsa sinna.

Búngáló er eitt af þeim skapandi og skemmtilegu fyrirtækjum sem staðsett eru á frumkvöðlasetri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Íslandsbanka í Kvosinni Lækjargötu.

Frekari upplýsingar um leigu sumarbústaða má nálgast á vefsíðu Búngaló www.bungalo.is eða hjá Hauki Guðjónssyni, stofnanda Búngaló í síma: 445-4444 | 770-0710

Ný námsleið við Háskólasetrið
Samningur um nýja námsleið við Háskólasetur Vestfjarða var undirritaður á aðalfundi Háskólasetursins í dag. Hin nýja námsleið nefnist „Sjávartengd nýsköpun“ og er samstarfsverkefni Háskólasetursins og Háskólans á Akureyri. Að sögn Peter Weiss, forstöðumanns Háskólasetursins, hefur lengi verið unnið að því að koma á fót öðru staðbundnu námi við setrið og áætlanir um framangreint nám hafa verið lengi á teikniborðinu. Til stóð að hefja námið á síðstliðnu hausti en endurskoðun hugmynda tók meiri tíma en áætlað var enda er námsleiðin mjög sérstök að mörgu leyti.

Háskólasetur Vestfjarða er til húsa í Vestra húsinu á Ísafirði

„Námsleiðin er hagnýt og svipar kannski einna mest til MBA náms. Markmiðið er að fólk þrói sína nýsköpunarhugmynd og hafi hagnýta þekkingu til að hrinda henni í framkvæmd. Það væri því óskandi að á endanum leiði hún til stofnunar nýrra fyrirtækja eða annarrar nýsköpunar innan starfandi fyrirtækja,“ segir Peter Weiss.

Námið er 90 eininga meistaranám sem unnið verður í samstarfi skólanna við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og er ætlað að gefa nemendum innsýn í málefni hafs og standa frá ýmsum sjónarhornum. Nýsköpun og rekstur smá- og örfyrirtækja skipar þar stórt hlutverk, en nemendur munu fullþróa nýsköpunarverkefni sem vega mun 50% af heildareiningafjölda námsins. Þar þurfa þeir að sýna fram á færni til að móta og framkvæma nýsköpunarhugmynd – hvort sem hún verður innan starfandi fyrirtækis eða í nýjum rekstri. Námið er einstaklingsmiðað nám, en hver og einn nemandi mótar námsáætlun sem taka mun mið af fagtengdum og rekstrartengdum námskeiðum og þróun nýsköpunarhugmyndar viðkomandi nemanda. Nýsköpunarverkefni nemendanna verða síðan eins og áður sagði unnin í nánu samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og vestfirskt atvinnulíf.

Frétt þessi birtist á www.bb.is föstudaginn 5. maí 2013.

ESB styrkir í vistvæna nýsköpun
Auglýst er eftir verkefnum sem fjalla um nýja tækni, vörur eða framleiðsluaðferðir í atvinnugreinum þar sem umtalsverðir möguleikar eru á betrumbótum. Hér er til dæmis um að ræða framleiðsluaðferðir í matar- og drykkjarframleiðslu, endurvinnslu, vatnsnotkun og byggingariðnaði. Um er að ræða svokallað CIP-EIP Eco-Innovation kall.

Umsóknir frá verkefnum sem komin eru á markaðsfærslustig

Áhersla er lögð á verkefni sem eru komin á markaðsfærslustig, þ.e. tækni, vöru eða framleiðsluaðferðir sem þegar hefur verið sýnst fram á að virki tæknilega en eru ekki komnar á markað. Verkefnin skulu ennfremur miða að því að minnka umhverfisáhrif eða betrumbæta frammistöðu fyrirtækja í umhverfismálum.

Umsóknarfrestur er til 5. september 2013.

Nánari upplýsingar má finna hér

Allar frekari upplýsingar veitir Kjartan Due Nielsen: kjartan@nmi.is | 522 9246

Startup Iceland 2013 - sjálfbær nýsköpun og uppbygging
Startup Iceland verður haldin í annað sinn á Íslandi dagana 1. - 4. júní í Háskólanum í Reykjavík og Hörpu.  Í ár verður megináhersla lögð á sjálfbæra nýsköpun og uppbyggingu Íslands til framtíðar. Startup Iceland veitir viðskipta-og frumkvöðlaumhverfinu á Íslandi mikilvægan stuðning með því að fá til Íslands áhrifafólk víðs vegar að til að koma og taka þátt í mikilvægri umræðu um sjálfbærni frumkvöðlasamfélaga. Nú í ár gefst þátttakendum í fyrst sinn tækifæri til þess að hafa mótandi áhrif á framgang ráðstefnunnar.

Frumkvöðlar eru mikilvægustu drifkraftar viðskiptalífsins

Sagan sýnir að frumkvöðlar eru mikilvægustu drifkraftar viðskiptalífsins. Þeir stuðla að jákvæðum vexti atvinnulífs með hagkvæmri uppbyggingu og virðisaukandi sköpun. Á meðal helstu fyrirlesara í ár eru:

Jason Mendelson og Ryan Mclntyre. Tveir af þremur stofnendum Foundry Group, 600+ milljón dollara VC sjóður. Helstu fjárfestingar: Zynga, Fitbit, Makerbot, Stocktwits, Rover.com (AirBnB fyrir hunda). foundrygroup.com

Brad Burnham. Stofnandi Union Square Ventures, 450+ milljón dollara VC sjóður í New York. Helstu fjárfestingar: Foursquare, Codecademy, Etsy, Kickstarter, Soundcloud, Tumblr og Twitter.usv.com

Nassim Nicholas Taleb. Höfundur metsölubókanna "The Black Swan", "Antifragile" & "Fooled by Randomness"

Damon Berger og Shira Lazar. Stofnendur What’s Trending, gríðarlega vinsælt spin-off frá CBS í Bandaríkjunum og fékk m.a Emmy útnefningu 2012.

Alex Torrenegra. Stofnandi VoiceBunny.com og Voice123.com. Hefur einnig fjárfest í fyrirtækjum á borð við WeHostels, VivaReal, and HubBOG. Þá fékk hann "Innovator of the Year" verðlaunin frá MIT Columbia 2012

Gunnar Hólmsteinn. Frumkvöðull og fyrrum framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins CLARA sem nú nýverið var selt til Jive Software í Bandaríkjunum fyrir 1 milljarð króna

Helga Waage. Frumkvöðull og annar stofnandi sprotafyrirtækisins Mobilitus. Mobilitus er ört vaxandi fyrirtæki sem heldur utan um miðasölugáttir í gegnum farsíma fyrir stórfyrirtæki á borð við Ticketmaster og Live Nation

Sjá nánari upplýsingar hér um alla fyrirlesara

Taktu þátt og vertu virkur þátttakandi í umræðu um sjálfbærni og þróun til uppbyggingar íslensks samfélags. Stækkaðu tengslanetið með því að kynnast framúrskarandi fólki í nýsköpun og tækni sem kemur víðsvegar að úr heiminum!

Skráningarform og nánari upplýsingar er að finna hér

Viltu ná auknum árangri?
Nýsköpunarmiðstöð Íslands býður öllum áhugasömum að taka þátt í vinnustofu um hugmyndir að vörum eða þjónustu og vöruþróun allt til markaðshæfra afurða. Í vinnustofunni verður fjallað um vöruhugmyndir, hvernig má afla þeirra og bent verður á leiðir til að vinna skipulega úr þeim og nýta þær til í ný verkefni eða til að bæta núverandi rekstur.

Vinnustofan er tvískipt  og verður haldin  dagana 21. og 27. maí frá kl. 15:00 - 18: 30 í Sjávarsmiðjunni á Reykhólum, Vesturbraut 2. Vinnustofan er jafnt fyrir þá sem eru nú þegar í rekstri og þá sem áhuga á að hefja rekstur.

Nánari upplýsingar veita:

Arna Lára Jónsdóttir verkefnisstjóri í síma 522 9461 | arnalara@nmi.is

Sigurður Steingrímsson verkefnisstjóri í síma 522 9435 | sigurdurs@nmi.is

Þátttaka er án endurgjalds. Skráningarform er að finna hér

Umsóknarfrestur vegna Nordic Built
Nordic Innovation ásamt stofnunum á Norðurlöndunum auglýsa opinn umsóknarfrest vegna Nordic Built. Umsóknarferlið er tveggja þrepa og skal skila inn forumsókn (Expression of Interest) fyrir 1. júní n.k. kl: 16:00 CET (14:00 GMT) gegnum heimasíðu Nordic Innovation.

Skilyrði fyrir styrkhæfi

Þátttakendur í verkefnunum skulu koma frá Norðurlöndunum (þremur eða fleiri Norðurlöndum) og standa fyrir sameiginlegu nýsköpunar- eða þróunarverkefni sem miða að endurbótum á eldri byggingum og umhverfi þeirra

Nordic Built getur styrkt verkefni sem unnin eru af einkafyrirtækjum, opinberum fyrirtækjum, rannsóknarstofnunum og háskólum sem hafa aðsetur í einhverju Norðurlandanna

Verkefnið skal miða að endurbótum á eldri byggingum og umhverfi þeirra

Opinber fjármögnun verkefnisins getur að hámarki orðið 50% af heildarkostnaði, sjá nánar um viðurkenndan kostnað Tækniþróunarsjóðs

Lengd verkefna er að hámarki 36 mánuðir

Nánari upplýsingar um Nordic Built má finna hér

Tengiliðir á Íslandi hjá Rannís og Nýsköpunarmiðstöð Íslands

Björn Víkingur Ágústsson - bjornv@rannis.is | 515-5800

Björn Marteinsson - bjorn.m@nmi.is | 522-9000

Í mati Rannís á styrkhæfi verkefna verður farið eftir þeim kröfum sem settar eru um verkefnisstyrki hjá Tækniþróunarsjóði. Hámarksstyrkur til íslenskra þátttakenda er 15 m.kr. á ári í 3 ár

28 sumarstörf í boði sumarið 2013
Nú liggur ljóst fyrir að 28 sumarstörf verða í boði fyrir námsmenn hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.  Allar umsóknir þurfa að berast í gegnum vef Vinnumálastofnunar og rennur umsóknarfrestur út þriðjudaginn 21. maí næstkomandi.

Störf í boði auglýst á vef Vinnumálastofnunar

Ferli átaksverkefnisins verður það sama og undanfarin ár. Upplýsingar um auglýst störf er að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar sem jafnframt sér um móttöku umsókna í öll störf. Líkt og áður er miðað við að ráðningartími í hvert starf séu tveir mánuðir. Framlag Atvinnuleysistryggingasjóðs nemur að hámarki grunnfjárhæð atvinnuleysisbóta fyrir hvert starf auk 8% framlags í lífeyrissjóð.

Upplýsingar um þau störf sem í boði eru á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Ísalnds sumarið 2013 er að finna hér

Umsóknarform og leiðbeiningar er að finna hér

MorgunVorboð með Ungum frumkvöðlum á Íslandi
Þeim fyrirtækjum fer nú ört fjölgandi sem eru að marka sér stefnu í samfélagslegri nýsköpun. Hugtakið lýtur að uppfyllingu samfélagslegra þarfa sem leiða til bættra lífskjara og sjálfbærni samfélaga. Breytingar á samfélagi eru oftar en ekki drifnar áfram af metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingum, nýrri þekkingu og nýjum lausnum. Markaðsþróun og hvatning til nýrra hluta hjá fyrirtækjum og stofnunum hefur þar einnig mikil áhrif.  Nýsköpunarmiðstöð Íslands veitir verkefnum á þessu sviði stuðning sinn í verki og því efnir miðstöðin til morgunvorboðs ásamt Ungum frumkvöðlum og Mílu ehf. til að fá tækifæri til að kynna mikilvægi nýsköpunar- og frumkvöðlamenntar á öllum skólastigum í íslensku samfélagi með aðkomu og í samstarfi við atvinnulífið í landinu.

Viltu skapa aðstæður til að ungt fólk geti skapað sér sína eigin framtíð?

Viltu efla æsku landsins til aukinnar nýsköpunar?

Viltu nýsköpun inn í þitt fyrirtæki?

MorgunVorboð með Ungum frumkvöðlum á Íslandi

Ungir frumkvöðlar á Íslandi í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Mílu ehf.  bjóða  til kynningarfundar á Grand hótel Reykjavík fimmtudaginn 16. maí 2013 frá kl. 8.30 til 10.00. Tilgangur fundarins er að stækka hóp félagsaðila Ungra frumkvöðla til eflingar á nýsköpun í íslensku samfélagi og sjálfbærni samfélaga með það að markmiði að skapa brú á milli atvinnulífs og skólasamfélags.

Skráning fer fram hér

Dagskrá MorgunVorboðs

Setning - Gunnar Jónatansson, fundarstjóri

Ungir frumkvöðlar á Íslandi - Rósa Kristín Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri UF

Frumkvöðlahugsunin - Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík

Fyrirtækjasmiðjan - Rósa Kristín Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri UF

Atvinnulífssýnin - Páll Á. Jónsson, framkvæmdastjóri Mílu ehf.

Kennarasýnin - Tinna Ösp Arnardóttir, kennari í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ

Nemendasýnin - Bjarki Benediktsson, nemandi í Verslunarskóla Íslands og einn stofnenda Kratos, Besta fyrirtækisins 2013 (getur tekið breytingum)

Brúarsmíðin - Umræða um framtíðarsýn samvinnu atvinnulífs og skóla

Húsið opnar kl. 8.00 með morgunverðarhlaðborði.

Skráningarfrestur til kl. 12:00 miðvikudaginn 15. maí - skráning fer fram hér

Við hvetjum alla þá sem sjá sér hag í því að styðja og efla ungt fólk til nýsköpunar, íslensku atvinnulífi til heilla og hagbsbóta, til að skrá sig á fundinn.

Um Unga frumkvöðla á Íslandi

Ungir frumkvöðlar á Íslandi eru frjáls félagasamtök, rekin án hagnaðarsjónarmiða, og tilheyra alþjóðlegu samtökunum  Junior Achievement – Young Enterprice sem starfa í yfir 100 löndum um heim allan. Markmið samtakanna er efling nýsköpunar- og frumkvöðlamenntar á öllum skólastigum.

TEDx Reykjavík í júní
Ráðstefnan TEDxReykjavík verður haldin í þriðja sinn þann 3. júní nk. frá kl. 13.00 - 17.30 í fyrirlestrarsal Arion banka. Markmið ráðstefnunnar er að ljá góðum hugmyndum vængi. Boðið er upp á leiftrandi fyrirlestra þar sem kynntar eru nýjar hugmyndir og spennandi uppgötvanir.

TEDxReykjavík er kjörinn vettvangur fyrir Íslendinga til að koma hugmyndum sínum á framfæri á alþjóðlegum vettvangi, en erindin eru öll á ensku. Meðal fyrirlesara eru Kári Stefánsson, Margrét Pála Ólafsdóttir, Össur Kristinsson, Sigga Heimis og Úlfur Hansson.

Dagskrá og nánari upplýsingar á:

tedxreykjavik.is

facebook.com/tedxreykjavik

Miðasala fer fram á miði.is

Fyrir þá sem ekki þekkja til er TEDx ráðstefna smærri útgáfa af TED – Ideas worth spreading þar sem fyrirlesarar hvaðanæva úr heiminum flytja stutt og kraftmikil erindi um allt milli himins og jarðar. Þau erindi og valin erindi frá TEDx eru birt á TED.com og eru öllum aðgengileg.

Nánari upplýsingar um TEDx er að finna hér

Frá hugmynd til vöru - námskeið á Sauðárkróki
Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Sveitarfélagið Skagafjörður og Farskólinn - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra bjóða upp á stutt námskeið fyrir frjóa einstaklinga sem búa yfir góðri viðskiptahugmynd og langar að þróa hana að veruleika.

Námskeiðin verða haldin í húsnæði Farskólans á Faxatorgi á Sauðárkróki dagana 13., 21. og 24. maí. Námskeiðin eru án endurgjalds en áhugasamir þurfa að skrá þátttöku á vef Nýsköpunarmiðstöðvar.

Nánari upplýsingar um námskeiðið og skráningarform er að finna hér.