Beint á leiðarkerfi vefsins

Impra á Nýsköpunarmiðstöð

Impra á Nýsköpunarmiðstöð veitir frumkvöðlum endurgjaldslausa handleiðslu við þróun viðskiptahugmynda. Hjá Impru er á einum stað hægt að leita aðstoðar ýmissa sérfræðinga um allt sem við kemur viðskiptahugmyndum og almennum rekstri fyrirtækja.

Stofnun og rekstur  Styrkir og stuðningsverkefni  Námskeið

Frumkvöðlasetur 

Reiknilíkön Sýnishorn og skjöl
            

Hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð geturðu sótt um styrki, setið námskeið, fengið upplýsingar um stofnun og rekstur fyrirtækja, sótt leiðbeiningar, form og reiknilíkön til áætlanagerðar. Fáðu aðstoð hjá okkur við þróun vöru eða þjónustu, stofnun og rekstur fyrirtækis eða gerð viðskiptaáætlana.

Sendu okkur fyrirspurn á johanna@nmi.is eða pantaðu handleiðsluviðtal í síma 522 9267.  

Fréttir Impru á Nýsköpunarmiðstöð

23.1.2012

Samstarfsnet skapandi aðila á Norðurlöndum

KreaNord er umfangsmikið norrænt verkefni, sem miðar að því að styrkja stöðu skapandi greina og auka sóknarfæri á alþjóðamarkaði. KreaNord hefur nú endurnýjað vefsíðuna www.kreanord.org, bætt við upplýsingum og aukið gagnvirkni síðunnar.

18.1.2012

Opnað fyrir umsóknir í Átak til Atvinnusköpunar 10. febrúar

Opnað verður fyrir umsóknir í Átak til Atvinnusköpunar þann 10. febrúar n.k. Átak til atvinnusköpunar er styrkáætlun iðnaðarráðuneytisins fyrir nýsköpunarverkefni og markaðsaðgerðir starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með umsóknarferlinu fyrir hönd iðnaðarráðuneytisins. Frestur til að sækja um í Átak til atvinnusköpunar er til fimmtudagsins 1. mars 2012.

17.1.2012

115 umsóknir bárust í þróunarsjóðinn Ísland allt árið

Umsóknarfrestur í þróunarsjóðinn Ísland allt árið rann út miðvikudaginn 11. janúar og alls bárust 115 umsóknir um styrki úr sjóðnum. Heildarupphæð umbeðinna styrkja var um það bil 300 milljónir króna. Ætlunin er að úthluta tvisvar sinnum úr sjóðnum en heildarframlag stofnenda sjóðsins er 70 milljónir króna og til úthlutunar að þessu sinni eru 35 milljónir króna. Stefnt er að úthlutun úr sjóðnum í lok febrúar og verður öllum umsóknum svarað um mánaðarmótin febrúar/mars.


Fréttir

27.1.2012

Nýtt hráefni til stefnumótunar fyrir ferðaþjónustuaðila á Íslandi

27.1.2012

Norðaustan 10 - sýning opnuð á Húsavík

23.1.2012

Komdu í hóp Brautargengiskvenna - ný námskeið að hefjast

Fréttaveita NMÍ - RSS 2.0

Á döfinni

3. febrúar 2012 - Hús atvinnulífsins

Kynningarfundur Tækniþróunarsjóðs

sjá nánar

8. febrúar 2012 - Selfoss

Brautargengi á Selfossi

sjá nánar

10. febrúar 2012 - Vefsíðu Nýsköpunarmiðstöðvar

Átak til Atvinnusköpunar opið til umsóknar

sjá nánar

  

Styrkir
Umsóknareyðublöð


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica