Beint á leiðarkerfi vefsins

Ertu með viðskiptahugmynd?

Impra á Nýsköpunarmiðstöð veitir einstaklingum fjölbreytta aðstoð við að þróa viðskiptahugmyndir og hrinda þeim í framkvæmd.

Pantaðu tíma í endurgjaldslausa handleiðslu
Árlega veitum við rúmlega 5000 viðtöl þar sem frumkvöðlum og stofnendum fyrirtækja er veitt leiðsögn við þróun viðskiptahugmynda, gerð viðskiptaáætlana og stofnun og rekstur fyrirtækis.

Frumkvöðlasetur
Nýsköpunarmiðstöð Íslands rekur sjö frumkvöðlasetur þar sem einstaklingar og hópar fá aðstöðu og stuðning til að hrinda viðskiptahugmyndum sínum í framkvæmd.

  • Skrifstofuaðstaða gegn vægu gjaldi
  • Faglegur stuðningur starfsmanna Nýsköpunarmiðstöðvar
  • Skapandi umhverfi
  • Tengslanet
  • Aðstaða fyrir verkstæði, rannsóknir eða frumgerðasmíði (í Eldey, Kími og á Keldnaholti)

Allt um stofnun og rekstur fyrirtækja
Á vef okkar er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um viðskiptahugmyndir og stofnun og rekstur fyrirtækja, þar á meðal gátlisti fyrir stofnun fyrirtækja, reiknilíkön (Excel) fyrir áætlanagerð og algeng leyfi sem þarf til atvinnurekstrar.

Námskeið um stofnun fyrirtækis
Nýsköpunarmiðstöð býður upp á ýmis námskeið fyrir einstaklinga sem hafa hug á að stofna fyrirtæki. Námskeiðin eru allt frá tveimur dögum upp í 75 klst. Á lengri námskeiðunum vinna þátttakendur að viðskiptaáætlun fyrir eigin viðskiptahugmyndir.


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica