Fab Lab stefna
Fab Lab stefna
Tilgangur:
Fab Labs eru alþjóðlegt net stafrænna smiðja sem ýta undir nýsköpun með því að veita einstaklingum aðgang að stafrænum framleiðslutólum
Aðgengi:
Þú getur notað Fab Labið til að búa til nánast hvað sem er; þú verður hinsvegar að gera það sjálfur og þú verður að deila smiðjunni með öðrum notum notendum.
Menntun:
Þjálfun í Fab Lab er byggð á því að vinna verkefni og læra af jafningjum; ætlast er til þess að þú takir þátt í skjölun og kennslu.
Ábyrgð:
Þú berð ábyrgð á:
Öryggi: Að vita hvernig á að vinna án þess að skaða fólk og vélar
Tiltekt: Að skilja vinnustofuna eftir hreinni en þú komst að henni
Rekstri: Að aðstoða við viðhald, viðgerðir og tilkynningar um verkfærin og hráefnin
Leynd:
Hönnun og ferli sem eru þróuð í Fab Lab verða að vera opin fyrir einstaklingsnotkun, en vernda má hugverk á hvaða hátt sem við á.
Viðskipti:
Fyrirtæki geta starfað og dafnað innan Fab Lab en mega ekki stangast á við opið aðgengi, þau ættu að vaxa upp úr smiðjunni frekar en að vaxa innan hennar, og ætlast er til þess að þau gagnist uppfinningamönnum, verkstæðum og samtökum þeirra og hjálpi þeim við frekari útrás.
Þýðing: 26/06/2007









