Fab Lab fréttir
18.2.2010
Fab Lab einnig á Sauðarkróki og Akranesi
10.11.2009
Alþjóðleg Athafnavika í Eyjum
Impra á Nýsköpunarmiðstöð í Eyjum tekur þátt í alþjóðlegu athafnavikunni og verða eftirtaldir viðburðir þar.
- Þriðjudaginn 17.nóv: Fab Lab (fabrication laboratory) fyrir frumgerðarsmíði
- Miðvikudaginn 18.nóvember:Nýsköpunarstefna fyrir Vestmannaeyjar, umræðufundur í samstarfi NMI og Atvinnuþróunarfélags Suðurlands.
- Miðvikudaginn 18.nóvember: Fab Academy, tölvustýrð fræsing
- Fimmtudaginn 19.nóvember: Þrívíddarhönnun með Blender
29.9.2009
Fab Lab smiðjan vinsæl í Eyjum
16.9.2009
Hvað er Fab Lab?
Fab Lab (Fabrication Laboratory) er stafræn smiðja með tækjum og tólum til að búa til nánast hvað sem er. Nýsköpunarmiðstöð Íslands starfrækir Fab Lab smiðju í Vestmannaeyjum.
4.9.2009
Fab Academy, enn tekið við skráningum
Nú á næstunni hefst kennsla í Fab Academy, alþjóðlegu námi sem hægt verður að stunda frá Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum og á níu öðrum stöðum í heiminum. Í náminu læra nemendur ýmis tæknileg atriði sem eru nauðsynleg hæfni.
Nánari upplýsinga má finna á www.fabacademy.org eða hjá Frosta Gíslasyni í Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum, 481 3355.
1.9.2009
Fab Lab nám á grunnskóla-, framhaldsskóla- og háskólastigi
13.7.2009
Laust starf - sérfræðingur
Sérfræðingur í stafrænni framleiðslutækni
Nýsköpunarmiðstöð Íslands auglýsir stöðu sérfræðings með starfsaðstöðu í Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum.
Starfssvið
Verkefni á sviði frumgerðasmíði, kennslu, þróunar og ýmiss konar nýsköpunarverkefna í samstarfi við fyrirtæki, nemendur og frumkvöðla.
8.7.2009
Fab Academy haustið 2009
Fab Academy er alþjóðlegt nám fyrir þá sem vilja öðlast færni sem nauðsynleg er á 21. öldinni. Kennslan hefst haustið 2009 og verður hægt að stunda námið frá Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum ásamt nokkrum völdum stöðum víðs vegar um heiminn. Kennarar verða prófessorar frá MIT háskólanum, University of Bath, IAAC í Barcelona o.fl. ásamt kennurum í Fab Lab smiðjunum um heim allan.
22.6.2009
Fab Lab í Sjónvarpsfréttum
14.5.2009
Mýrdælingar nýta sér Fab Lab smiðjuna
16 manna hópur frá Grunnskóla Mýrdalshrepps kom í Fab Lab smiðjuna þann 13.maí s.l. og vann að vöruþróunarhugmyndum sínum.








