Fab Lab fréttir
19.12.2008
Jólagjafasmiðja Fab Lab
Grunnskólanemendur og framhaldsskólanemendur nýta sér nú þekkingu sem þeir hafa aflað í Fab Lab smiðjunni til þess að hanna og gera persónumiðaðar jólagjafir í Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum.
Almenning gefst kostur að nýta sér smiðjuna og afla sér um leið þekkingu um stafræna framleiðsluaðferðir.
RÚV birti frétt um jólagjafasmíðina í Fab Lab þann 19.desember 2008.
26.11.2008
Birgir Jóhannesson fjallar um efnisfræði í Fab Lab
Birgir Jóhannesson sérfræðingur í efnisfræði hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands heimsótti nemendur í Fab Lab smiðju Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands þann 25. nóvember síðast liðinn.
Birgir hélt fyrirliestra bæði fyrir grunnskólanemendur og nemendur í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum.
18.11.2008
Menntamálaráðherra heimsækir Fab Lab
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra heimsótti Fab Lab smiðju Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands mánudaginn 17. nóvember ásamt föruneyti frá Menntamálaráðuneytinu. Markmið heimsóknarinnar var að kynnast menntaþætti Fab Lab smiðjunnar með sérstakri áherslu á menntaverkefnið Fab Lab 103 og 203 sem er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum og Visku, fræðslu og símenntunarmiðstöðvar. Menntaverkefnið var styrkt sem hluti af mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna skerðingar aflaveiðiheimilda.
15.11.2008
Sífellt aukinn áhugi á Fab Lab smiðju
Sífellt aukiinn áhugi er á Fab Lab smiðju Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands í Vestmannaeyjum
1.10.2008
Vöruþróun fyrir nemendur í Fab 103
Karl Friðriksson framkvæmdastjóri mannauðs- og þjónustusviðs hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands kom í Fab Lab smiðjuna í Eyjum þann 30.september 2008 og hélt erindi fyrir hóp nemenda í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum um árangursríka aðferðarfræði í vöruþróun.
Markmið erindisins var að kynna mikilvægi góðrar verkefnastjórnunar við vöruþróun og auka líkurnar á vel heppnaðri afurð. En nemendur í áfanganum Fab 103 í Framhaldsskólanum í Eyjum læra m.a. um hugmyndafræði vöruþróunar, frumgerðarsmíði og hönnun.
5.9.2008
Fab Lab kennsla á háskólastigi
Alþjóðleg Fab Lab kennsla er nú aðgengileg almenningi í gegnum fjarfundabúnað í Fab Lab smiðju Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í Vestmannaeyjum.
Kennsla fer fram á mánudögum kl. 17:00 og MIT háskólinn sér um hana.
5.9.2008
Mikil aðsókn í Fab Lab smiðju
Undanfarnar vikur hefur verið stöðugur straumur fólks að kynna sér starfsemina í Fab Lab smiðjunni í Nýsköpunarmiðstöð Íslands Vestmannaeyjum; sumir hafa komið af einskærri forvitni en aðrir haft mjög ákveðnar hugmyndir um hvað þeir vilja skapa.
2.9.2008
Fab Lab námskeið í FÍV
Nýsköpunarmiðstöð Íslands stendur á þessari önn fyrir námskeiðum í stafrænni framleiðslutækni í samvinnu við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum og Visku. "Námskeiðið sem er að hefjast í Framhaldsskólanum verður valnámskeið til þriggja eininga sem hugsað er fyrir fólk bæði á verknáms- og bóknámsbrautum sem vilja efla skilning sinn á tölvutækni og iðnaði," segir Frosti Gíslason verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöðinni.









