Fab Lab fréttir
10.11.2009
Alþjóðleg Athafnavika í Eyjum
Impra á Nýsköpunarmiðstöð í Eyjum tekur þátt í alþjóðlegu athafnavikunni og verða eftirtaldir viðburðir þar.
- Þriðjudaginn 17.nóv: Fab Lab (fabrication laboratory) fyrir frumgerðarsmíði
- Miðvikudaginn 18.nóvember:Nýsköpunarstefna fyrir Vestmannaeyjar, umræðufundur í samstarfi NMI og Atvinnuþróunarfélags Suðurlands.
- Miðvikudaginn 18.nóvember: Fab Academy, tölvustýrð fræsing
- Fimmtudaginn 19.nóvember: Þrívíddarhönnun með Blender
29.9.2009
Fab Lab smiðjan vinsæl í Eyjum
16.9.2009
Hvað er Fab Lab?
Fab Lab (Fabrication Laboratory) er stafræn smiðja með tækjum og tólum til að búa til nánast hvað sem er. Nýsköpunarmiðstöð Íslands starfrækir Fab Lab smiðju í Vestmannaeyjum.
4.9.2009
Fab Academy, enn tekið við skráningum
Nú á næstunni hefst kennsla í Fab Academy, alþjóðlegu námi sem hægt verður að stunda frá Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum og á níu öðrum stöðum í heiminum. Í náminu læra nemendur ýmis tæknileg atriði sem eru nauðsynleg hæfni.
Nánari upplýsinga má finna á www.fabacademy.org eða hjá Frosta Gíslasyni í Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum, 481 3355.
1.9.2009
Fab Lab nám á grunnskóla-, framhaldsskóla- og háskólastigi
13.7.2009
Laust starf - sérfræðingur
Sérfræðingur í stafrænni framleiðslutækni
Nýsköpunarmiðstöð Íslands auglýsir stöðu sérfræðings með starfsaðstöðu í Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum.
Starfssvið
Verkefni á sviði frumgerðasmíði, kennslu, þróunar og ýmiss konar nýsköpunarverkefna í samstarfi við fyrirtæki, nemendur og frumkvöðla.
8.7.2009
Fab Academy haustið 2009
Fab Academy er alþjóðlegt nám fyrir þá sem vilja öðlast færni sem nauðsynleg er á 21. öldinni. Kennslan hefst haustið 2009 og verður hægt að stunda námið frá Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum ásamt nokkrum völdum stöðum víðs vegar um heiminn. Kennarar verða prófessorar frá MIT háskólanum, University of Bath, IAAC í Barcelona o.fl. ásamt kennurum í Fab Lab smiðjunum um heim allan.
22.6.2009
Fab Lab í Sjónvarpsfréttum
14.5.2009
Mýrdælingar nýta sér Fab Lab smiðjuna
16 manna hópur frá Grunnskóla Mýrdalshrepps kom í Fab Lab smiðjuna þann 13.maí s.l. og vann að vöruþróunarhugmyndum sínum.
14.5.2009
Stærðfræði skúlptúr í Fab Lab
Dr. Edmund Harris stærðfræðingur frá London kom á dögunum í Fab Lab smiðjuna og vann að gerð stærðfræðiskúlptúrs með um 20 ungmennum í Fab Lab smiðjunni í Eyjum. Samhliða vinnunni við gerð skúlptúrsins fræddi Dr. Edmund ungmennin um gerð þrívíddarlíkana úr tvívíðum stærðfræðilegum formum.
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á http://www.fablab.is/w/index.php/Sculpture_System_No._5
1.4.2009
Fab Lab páskaeggjasamkeppnin hafin
Alþjóðlega páskaeggjasamkepnin í Fab Lab er nú hafin. Þátttakendur eiga að gera lýsingu og hvernig eggin eru gerð og hvaða eiginleikum þau eru gædd tæknilega. Nánari upplýsingar í Fab Lab smiðjunni.
25.2.2009
Söngurinn ómaði víða
Ungmennin sungu samtímis fyrir fólkið í Fab Lab smiðjunum í Vestmannaeyjum, í Noregi og á Spáni og fékk söngurinn góðar viðtökur. Að launum fengu ungmennin góðgæti og Heimaey skorna í laserskeranum í Fab Lab smiðjunni.
10.2.2009
MIT kennslan hafin á ný í Fab Lab smiðjunni í Eyjum
Kennslan er nú hafin á ný frá MIT í Fab lab smiðjunni í Vestmannaeyjum.
Nú verður kenndur áfanginn:
MAS 961
How To Make Something That Makes (almost) Anything
Mánudaga frá 18:00-21:00 í Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum.
28.1.2009
Fab Lab ferð til Afghanistan
Í janúar 2009 ákvað sjö manna hópur Fab Lab notanda frá þremur löndum að fara á eigin vegum til Jalalabad í Afghanistan með háleit markmið um að byggja upp frítt þráðlaust internetsamband í borginni. Ferðalangarnir voru Bandaríkjamennirnir Amy Sun, Lucy Williams, Steve Arnold og Keith Berkoben, Suður-Afríkubúinn Carl Scheffler, og Íslendingarnir Andreas Guðmundsson og Smári McCarthy, sem er starfsmaður Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
20.1.2009
Fab Lab kennslan á fullan skrið
Kennsla er nú hafin á ný í Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum í Grunnskóla Vestmannaeyja og Framhaldsskóla Vestmannaeyja.
Nemendur í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum eru í öðrum áfanga í Fab 203.
Nemendur munu læra nánar um stafræna framleiðslutækni og nýta sér þá aðstöðu sem er í Fab Lab smiðju Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands í Vestmannaeyjum. Nemendurnir munu ýmist vinna að smærri verkefnum og stærra lokaverkefni.
15.1.2009
Fab Lab samvinna efld
Frosti Gíslason, frá Fab Lab smiðju Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands fór til Lyngen í Noregi til þess að efla samstarf og kynnast starfsemi Fab lab smiðjunnar þar og annara smiðja víðsvegar um heiminn. Á staðnum voru fulltrúar frá MIT í Boston, Fab lab smiðjum í Amsterdam, Barcelona og Vestmannaeyjum.
Markmið heimsóknarinnar var að taka þátt í vinnubúðum í smiðjunni og læra betur á búnað Fab lab smiðjanna, hugbúnað, tækjabúnað og annað sem viðkemur rekstri á Fab Lab smiðjum og þar með að styrkja tengsli við aðrar smiðjur víðsvegar um heiminn.









