Beint á leiðarkerfi vefsins

Fab Lab fréttir

28.1.2009

Fab Lab ferð til Afghanistan

smari_xo.jpgÍ janúar 2009 ákvað sjö manna hópur Fab Lab notanda frá þremur löndum að fara á eigin vegum til Jalalabad í Afghanistan með háleit markmið um að byggja upp frítt þráðlaust internetsamband í borginni. Ferðalangarnir voru Bandaríkjamennirnir Amy Sun, Lucy Williams, Steve Arnold og Keith Berkoben, Suður-Afríkubúinn Carl Scheffler, og Íslendingarnir Andreas Guðmundsson og Smári McCarthy, sem er starfsmaður Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

20.1.2009

Fab Lab kennslan á fullan skrið

Fab Lab kennsla hafin 2009Kennsla er nú hafin á ný í Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum í Grunnskóla Vestmannaeyja og Framhaldsskóla Vestmannaeyja.

Nemendur í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum eru í öðrum áfanga í Fab 203.
Nemendur munu læra nánar um stafræna framleiðslutækni og nýta sér þá aðstöðu sem er í Fab Lab smiðju Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands í Vestmannaeyjum.  Nemendurnir munu ýmist vinna að smærri verkefnum og stærra lokaverkefni.

 

15.1.2009

Fab Lab samvinna efld

Fab lab Noregur 2009Frosti Gíslason, frá Fab Lab smiðju Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands fór til Lyngen í Noregi til þess að efla samstarf og  kynnast starfsemi Fab lab smiðjunnar þar og annara smiðja víðsvegar um heiminn.  Á staðnum voru fulltrúar frá MIT í Boston, Fab lab smiðjum í Amsterdam, Barcelona og Vestmannaeyjum.

Markmið heimsóknarinnar var að taka þátt í vinnubúðum í smiðjunni og læra betur á búnað Fab lab smiðjanna, hugbúnað, tækjabúnað og annað sem viðkemur rekstri á Fab Lab smiðjum og þar með að styrkja tengsli við aðrar smiðjur víðsvegar um heiminn.


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica