Beint á leiðarkerfi vefsins

Fab Lab fréttir

29.9.2009

Fab Lab smiðjan vinsæl í Eyjum

FabAcademy myndFab Lab smiðja Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands nýtur mikilla vinsælda í Vestmannaeyjum og það sem af er septembermánuði hafa 328 gestir nýtt sér smiðjuna til þess að smíða frumgerðir, læra um stafræna tækni, smíða tölvukubba, nota tölvustýrða laserskera og fræsivélar til að smíða fjölbreytta hluti og læra hönnun með opnum hugbúnaði. 

16.9.2009

Hvað er Fab Lab?

Fab Lab (Fabrication Laboratory) er stafræn smiðja með tækjum og tólum til að búa til nánast hvað sem er. Nýsköpunarmiðstöð Íslands starfrækir Fab Lab smiðju í Vestmannaeyjum.

 

 

4.9.2009

Fab Academy, enn tekið við skráningum

Nú á næstunni hefst kennsla í Fab Academy, alþjóðlegu námi sem hægt verður að stunda frá Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum og á níu öðrum stöðum í heiminum.  Í náminu læra nemendur ýmis tæknileg atriði sem eru nauðsynleg hæfni.

Nánari upplýsinga má finna á www.fabacademy.org eða hjá Frosta Gíslasyni í Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum, 481 3355.

1.9.2009

Fab Lab nám á grunnskóla-, framhaldsskóla- og háskólastigi

Nýsköpunarmiðstöð Íslands býður upp á kennslu í Fab Lab smiðjunni í Eyjum fyrir breiðan hóp fólks. Boðið verður upp á sérnámskeið fyrir hópa og fyrirtæki í haust. Þá verður einnig í boði kennsla fyrir grunnskólanemendur, framhaldsskólanemendur og svo verður í boði kennsla í Fab Academy, sem er sambland af námi á háskólastigi og framhaldsskólastigi. Fab Academy verður kennt samhliða áfanga í MIT sem ber heitið How to make (almost) anything og kennarar verða prófessorar úr ýmsum virtum háskólum víðsvegar um heiminn. Í Fab Lab smiðjunni í Eyjum verður verklegi þátturinn kenndur.

Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica