Fab Lab fréttir
10.12.2010
Fab Academy starting soon
The Fab Academy provides instruction and supervises investigation of mechanisms, applications, and implications of digital fabrication.
Just as communications and computation went from analog to digital, resulting in PCs and the Internet, the digitization of fabrication is leading to personal fabricators that will allow anyone to make almost anything, anywhere. The development of digital fabrication is based on creating codes that don't just describe things, they are things, much as proteins are coded in molecular biology. This research roadmap is ultimately aiming at a Star Trek-style replicator, but prototype versions of these capabilities are already available in field "fab labs".
7.12.2010
Fab Boot Camp Vestmannaeyjar Iceland
January 10- 14, 2010
One week crash course in fab lab tools and processes by the gurus of the fab lab network. For new fab lab managers, teachers, and people who want a fast training course.
Participating labs:
AS220 Fab Lab in Providence, Rhode Island, USA (contact Shawn Wallave / shawn [at] AS220 [dot] org)
Lorrain County Community College Fab Lab in Elyria, Ohio, USA (contact Scott Zitek /
Barcelona Fab Lab in Barcelona, Spain (contact Tomas Diez / tomasdiez [at] iaac [dot] net)
Solvik Gard Fab Lab in Lyngen, Norway (contact Haakon or Jorgen Karlsen, jorgen [at] fablab [dot] no , haakon [at] fablab [dot] no)
Vestmannaeyjar Fab Lab in Iceland (contact Frosti Gíslason, frosti [at] nmi [dot] is )
12.11.2010
Fundaröð um Tækifæri atvinnulífsins í Eyjum
Nú á næstu mánuðum munu Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Atvinnuþróunarfélag Suðurlands í samstarfi við Fréttir og Eyjafréttir halda fundaröð um tækifæri atvinnulífsins í Eyjum.
Fundirnir verða haldnir í Eyjum og var fyrsti fundurinn þann 12.nóvember og var hann tileinkaður verslun og þjónustu. Tilgangur með fundunum er að halda uppi umræðu um tækifæri atvinnulífsins í Eyjum og skiptast á upplýsingum sem geta stutt við atvinnulífið í Eyjum.
Frosti Gíslason hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands segir að hugmyndin með þessu sé að skapa vettvang fyrir fólk úr atvinnulífinu til að koma saman og skipast á skoðunum og sýn. Með þessu er ætlunin að leita tækifæra fyrir atvinnulífið og styðja við aukna nýsköpun og vöruþróun.
10.11.2010
Fab Lab í athafnavikunni
Í Athafnavikunni 15.nóvember - 19. nóvember 2010 verða haldin fjölmörg námskeið í Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum. Markmið með námskeiðunum er að veita innsýn í tölvustudda hönnun og framleiðslu þannig að nemendur geti gert áþreifanlegar frumgerðir af hugmyndum sínum og lært viðeigandi grunnatriði til þess að framkalla hugmyndir sínar.
13.9.2010
Fab Academy hefst 19.janúar 2011
Veturinn 2010- 2011 býðst þér kostur á að taka þátt í alþjóðlegu námi í stafrænni framleiðslutækni í hinum alþjóðlega Fab Academy. Námið felur í sér þekkingaröflun og þjálfun í notkun á stafrænni framleiðslutækni. Farið er yfir notkun á tvívíddar – og þrívíddar hönnunartólum, framleiðslu og frumgerðarsmíði ásamt mörgu fleiru.
19.5.2010
Fab Lab Akranes opnaði þann 20.maí
25.3.2010
Evrópumiðstöð kynnt í Eyjum
Fulltrúi Evrópumiðstöðvar Impru kom til Eyja að kynna þjónustu sem er í boði fyrir fyrirtæki í Eyjum föstudaginn 26.mars 2010.Megin áhersla fundarins var þjónusta vegna sjávarútvegssýningar European Seafood Exposition 2010 sem verður haldin í Brussel dagana 27.-29. apríl nk.
Sameiginlegur kynningarfundur með sjávarútvegsfyrirtækjum í Eyjum var haldinn kl: 10:00 föstudaginn 26.mars á Nýsköpunarmiðstöð Íslands Bárustíg 1 í Eyjum.
Milli kl: 12 og 17 heimsótti fulltrúi Evrópumiðstöðvar fyrirtæki og aðstoðaði við að koma þeim á framfæri í Evrópusamstarfi eða aðstoða vegna væntanlegrar sjávarútvegssýningar í Brussel.
24.3.2010
Góð þátttaka á Orkubóndanum í Eyjum
Á námskeiðinu í Eyjum var sérstök áhersla lögð á virkjun með varmadælum, vindmyllum og einnig með öldum og sjávarföllum.
Bæði heimamenn og sérfræðingar sem komu víða að fluttu þar erindi.
9.3.2010
Orkubóndinn í Eyjum
Orkubóndinn í Eyjum
Áhugamenn um virkjun orku, hvort sem um er að ræða virkjun bæjarlækjar, hitareits, vindgnauðs, sólar eða jafnvel fjóshaugs, geta sótt námskeiðið Orkubóndann sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands stendur fyrir í Eyjum þann 23. mars n.k.
Á námskeiðinu í Eyjum verður sérstök áhersla lögð á virkjun með varmadælum, vindmyllum og einnig með öldum og sjávarföllum.









