Fab Lab fréttir
25.3.2010
Evrópumiðstöð kynnt í Eyjum
Fulltrúi Evrópumiðstöðvar Impru kom til Eyja að kynna þjónustu sem er í boði fyrir fyrirtæki í Eyjum föstudaginn 26.mars 2010.Megin áhersla fundarins var þjónusta vegna sjávarútvegssýningar European Seafood Exposition 2010 sem verður haldin í Brussel dagana 27.-29. apríl nk.
Sameiginlegur kynningarfundur með sjávarútvegsfyrirtækjum í Eyjum var haldinn kl: 10:00 föstudaginn 26.mars á Nýsköpunarmiðstöð Íslands Bárustíg 1 í Eyjum.
Milli kl: 12 og 17 heimsótti fulltrúi Evrópumiðstöðvar fyrirtæki og aðstoðaði við að koma þeim á framfæri í Evrópusamstarfi eða aðstoða vegna væntanlegrar sjávarútvegssýningar í Brussel.
24.3.2010
Góð þátttaka á Orkubóndanum í Eyjum
Á námskeiðinu í Eyjum var sérstök áhersla lögð á virkjun með varmadælum, vindmyllum og einnig með öldum og sjávarföllum.
Bæði heimamenn og sérfræðingar sem komu víða að fluttu þar erindi.
9.3.2010
Orkubóndinn í Eyjum
Orkubóndinn í Eyjum
Áhugamenn um virkjun orku, hvort sem um er að ræða virkjun bæjarlækjar, hitareits, vindgnauðs, sólar eða jafnvel fjóshaugs, geta sótt námskeiðið Orkubóndann sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands stendur fyrir í Eyjum þann 23. mars n.k.
Á námskeiðinu í Eyjum verður sérstök áhersla lögð á virkjun með varmadælum, vindmyllum og einnig með öldum og sjávarföllum.









