Fab Lab fréttir
30.4.2011
Þrívíddarmiðlun í Fab Lab
Dagana 26.-30.apríl s.l.l var Jens Dyvik hönnuður staddur í Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum. Markmið Jens var að kynnast starfsemi smiðjunnar í Eyjum ásamt því að miðla þekkingu sinni á stafrænum framleiðsluaðferðum og stafrænni vinnslu.
Jens kynnti fyrir notendum og nemendum smiðjunnar notkun á Arduino, opnum hugbúnaði og vélbúnaði. Jens sýndi fram einfalda nálgun til þess að tengja saman skynjara og mismunandi gerðir útganga til þess að miðla upplýsingum, með hljóði, ljósum og hreyfingu á mótórum. Þá kynnti Jens einnig ferli þróunar, sýndi fram á ýmis dæmi til þess að kalla fram hugmyndir og hvernig nota mætti náttúruna til þess að læra af, s.s. atferli dýra og ýmisleg fleira.
Jens ræddi einnig við hönnuði af staðnum og aðstoðaði þá í vöruþróunarferlinu við frumgerðarsmíði og mótun hugmyndanna.
Jens kynnti notkun á þrívíddarhugbúnaði og sýndi hvernig gera mætti þrívíddarteiknimyndir og þrívíddarkvikmyndir í Fab Lab smiðjunni. Þá var einnig farið yfir þætti varðandi Augmented Reality eða svokallaðs viðbætts raunveruleika og tækifæri við hönnun hugbúnaðs fyrir snjallsíma.
Fab Lab smiðjan í Eyjum þakkar Jens kærlega fyrir ánægjulega og fræðandi dvöl í Fab Lab smiðjunni.
Tenglar:
* http://www.dyvikdesign.com
Myndir frá heimsóknini:
* https://picasaweb.google.com/fablabfotos/WorldFabLabProjectsByEyeFi#









