Fab Lab fréttir
13.10.2011
Arduino örtölvunámskeið í Eyjum
Laugardaginn 15.október 2011 verður haldið Arduino örtölvunámskeið í Fab Lab smiðju Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í Vestmannaeyjum.
Námskeiðið er grunnnámskeið í notkun á Arduino örtölvu og verður farið yfir uppbyggingu Arduino. Tengdir verða einfaldir skynjarar og búin til einföld forrit. Nemendur læri grunn í notkun á Arduino forritunarumhverfinu, tengingar við önnur rafeindatæki og skynjara.
Námskeiðið verður laugardaginn 15.október 2011, í Fab Lab smiðjunni á Bárustíg 1, kl:13:00-17:00.
Kennari er Smári McCarthy.
Takmarkaður fjöldi.
Skráning er hjá Frosta Gíslasyni, verkefnisstjóra hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, frosti@nmi.is eða í síma 481 3355.









