Fab Lab fréttir
28.1.2009
Fab Lab ferð til Afghanistan
Yfir tveggja vikna skeið með nánast ekkert fjármagn milli h
andanna nýtti hópurinn sér Fab Lab smiðjuna, sem stendur í þorpinu Bagrami í útjaðri Jalalabad, til að byggja upp og dreifa þráðlausum internettengingum til stofnanna í borginni. Með parabólískum loftnetum voru gerðar stefnuvirkar tengingar yfir langar vegalengdir, en lengsti hlekkurinn var 3.5 kílómetrar, til sjúkrahússins í borginni.
Þá gat meinafræðideild sjúkrahússins notað tölvupóst til að senda myndir af sýnum til rannsókna í San Diego í stað þess að senda sýnin sjálf til Pakistan, en þetta þýðir að tíminn sem það tekur að fá niðurstöður úr rannsóknunum minnkar úr þremur dögum í um klukkutíma.
Auk þess nýtti hópurinn sér tímann til að byggja upp tengslanet í borginni, stofna fyrirtæki sem nýtir Fab Lab smiðjuna til að framleiða boli eftir pöntun, og leggja grunn að öðru fyrirtæki sem veitir háhraða nettengingar. Hópurinn stundaði nám í Pashto tungumálinu undir leiðsögn grunnskólakennarans Naqibullah Afghani, og kenndi honum og hinum kennurum Bagrami grunnskólans, sem hefur 20 kennara og 3000 nemendur, að nota tölvur.
Loks dreifði hópurinn OLPC fartölvum til kennara skólans, sem fengu leiðsögn í notkun Wikipedia og MIT OpenCourseWare meðal annars.









