Beint á leiðarkerfi vefsins

Fab Lab fréttir

10.11.2009

Alþjóðleg Athafnavika í Eyjum

 

Sibyr í Fab LabÞriðjudaginn 17.nóvember

Hvað:Fab Lab (fabrication laboratory) fyrir frumgerðarsmíði

Hvar og hvenær: Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum, Bárustíg 1, þriðjudaginn 17.nóv, kl: 12:00-13:00

Kynnt verða tækifæri fyrir athafnafólk til að smíða frumgerðir að vörum í Fab Lab smiðjunni í Eyjum. Fjallað verður um möguleika tölvustýrðra fræsivéla, laserskurðartækja og vinylskera.

Miðvikudagurinn 18.nóvember

Hvað: Nýsköpunarstefna fyrir Vestmannaeyjar, umræðufundur

Hvar og hvenær: Nýsköpunarmiðstöð Íslands í  Vestmannaeyjum, Bárustíg 1, miðvikudaginn 18.nóv, kl: 10:00-12:00.

Opnar umræður sem stýrt verður af fulltrúum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Atvinnuþróunarfélags Suðurlands um nýsköpunarstefnu fyrir Vestmannaeyjar.  Rætt um innihaldsefni væntanlegrar nýsköpunarstefnu fyrir Vestmannaeyjar.

Hvað: Fab Academy, tölvustýrð fræsing

Hvar og hvenær: Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum, Bárustíg 1, miðvikudaginn 18.nóv, kl: 13:00-18:00.

Kennd verða helstu atriði sem skipta máli varðandi tölvustýrða fræsingu. Prófessor Neil Gershenfeld  frá MIT verður með fyrirlestur í gegnum fjarfundabúnað og á staðnum verður farið yfir notkun á tækjunum.

Fimmtudagurinn 19.nóvember

Hvað: Þrívíddarhönnun með Blender

Hvar og hvenær: Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum, Bárustíg 1, fimmtudaginn 19.nóv, kl: 10:00-12:00.
Kennd verða grunnatriði í notkun á frjálsum og opnum þrívíddarhugbúnaði,( Blender)  til að gera módel, teiknimyndir og tölvuleiki.


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica