Nánar um Fab Lab
Rannsóknir á nýsköpun sem gerðar hafa verið við MIT háskólann í Bandríkjunum hafa leitt af sér nýjar hugmyndir um tæknilæsi. Fulltrúar háskólans komu til Íslands árið 2008 og bundust samtökum við Nýsköpunarmiðstöð í því augnamiði að þróa hér á landi miðstöð, sem staðsett yrði í Vestmannaeyjum, og nefnd er FabLab. Smiðjan hefur nú verið sett upp og er starfrækt í Vestmannaeyjum.
Frumgerðir og persónumiðuð framleiðsla
Verkefnið gengur út á þróun á notkun stafrænnar framleiðslutækni í FabLab smiðju í Vestmannaeyjum. Í FabLab smiðjunni eru m.a. unnið að nýsköpunar-og vöruþróunarverkefnum fyrirtækja í léttum iðnaði auk þess sem FabLab smiðjan er vettvangur fyrir einstaklinga og smá fyrirtæki til þess að þróa og smíða ýmiss konar sérhannaðar afurðir sem ætlaðar eru til sölu og frumgerðir vegna tilrauna og vöruþróunar.
Smiðjan mun hafa margfeldisáhrif á eflingu atvinnuþróunar og nýsköpunar í Vestmannaeyjum og víðar. Verkefnið gengur út á þróun á aðferðum til þess að stytta vöruþróunarferli, skapa vettvang fyrir stafræna framleiðslu og framþróun í hvers konar framleiðslu og smíði á varningi sem tengist heimilum og minjagripum eða öðrum varningi sem tengist léttum iðnaði.
FabLab hugmyndafræðin var þróuð af Center for Bits and Atoms í MIT-tækniháskólanum. Með því að færa þessa tækni í hendur almennings er hægt að leysa í litlum samfélögum fyrir minniháttar fjármuni svipuð vandamál og stórfyrirtæki á heimsvísu eru að leysa.
Tæknibúnaður
Fab Lab setur samanstendur af nokkrum iðnaðarframleiðslutækjum og rafeindatólum, vafin inn í frjálsan hugbúnað og hugbúnað skrifaðan af fræðimönnum hjá MIT.
Tækjabúnaðurinn í starfsstöðinni í Eyjum samanstendur m.a. af laserskera , vinýl skera,sem sker t.d. límmiða og í kopar til að búa til sveigjalegar rafrásir og loftnet, nákvæm fræsivél sem býr til þrívíða hluti og rafrásarbretti, og loks stærri fræsivél fyrir aðeins stærri hluti úr tré. Til viðbótar er safn af rafeindaíhlutum og forritunartólum fyrir ódýra háhraða örgjörva. MIT hefur auk þess, í samvinnu við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Háskólann í Nairobi, skrifað CAM (Computer Aided Machining) hugbúnaðarsafnið Kokompe sem skilur allar þær mismunandi framsetningar sem fólk notar til að lýsa hlutum á stafrænan hátt og breyta þeim í skipanir fyrir öll verkfærin. Rannsóknarmenn hjá MIT hafa einnig hannað hugbúnaðarsafn sem hjálpar notendum Fab Lab að deila skránum sínum og þekkingu sinni meðan þeir vinna, svo að jafningjar geta kennt hver öðrum frekar en að fara eftir fyrirfram ákveðinni námsskrá.
Smiðjur í stöðugri þróun
Fab Lab smiðjur þróast í takt við nýjustu rannsóknir. Þetta er stökkpallur fyrir öra frumgerðasmíði, og sem slíkt er því ætlað að hvetja frumkvöðla í heimahéraðinu að taka hugmyndir sínar af teikniborðinu og framleiða frumgerðir sem geta svo leitt til lítilla sprotafyrirtækja.
Fab Lab smiðjur einbeita sér líka að miðlun nauðsynlegrar þekkingar í tölvun, rafeindatækni, forritun og CAD/CAM framleiðslutækni - hæfileikar sem eru viðurkenndir á alþjóðavísu. Fab Lab er auk þess samfélag þar sem aðilar alls staðar að úr heiminum geta deilt sínum tæknilegu vandamálum yfir þverfaglegan grunn og fólk getur hjálpast að við að leysa og hanna lausnir á vandamálum mannkynsins. Í skiptum fyrir þátttöku menntaðra verkfræðinga í samfélaginu fá þeir tækifæri til að spreyta sig á vandamálum sem stórir hópar þurfa að glíma við á öðrum endum markaðsins.
Hugbúnaður
Í Fab Lab smiðjum er frjáls hugbúnaður í hávegum hafður. Við höfum útbúið síðu þar sem þú getur nálgast frjálsan hugbúnað sem hægt er að nota í Fab Lab smiðjunni.









