Fréttir Impru á Nýsköpunarmiðstöð
18.1.2012
Opnað fyrir umsóknir í Átak til Atvinnusköpunar 10. febrúar
Opnað verður fyrir umsóknir í Átak til Atvinnusköpunar þann 10. febrúar n.k. Átak til atvinnusköpunar er styrkáætlun iðnaðarráðuneytisins fyrir nýsköpunarverkefni og markaðsaðgerðir starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með umsóknarferlinu fyrir hönd iðnaðarráðuneytisins. Frestur til að sækja um í Átak til atvinnusköpunar er til fimmtudagsins 1. mars 2012.
17.1.2012
115 umsóknir bárust í þróunarsjóðinn Ísland allt árið
Umsóknarfrestur í þróunarsjóðinn Ísland allt árið rann út miðvikudaginn 11. janúar og alls bárust 115 umsóknir um styrki úr sjóðnum. Heildarupphæð umbeðinna styrkja var um það bil 300 milljónir króna. Ætlunin er að úthluta tvisvar sinnum úr sjóðnum en heildarframlag stofnenda sjóðsins er 70 milljónir króna og til úthlutunar að þessu sinni eru 35 milljónir króna. Stefnt er að úthlutun úr sjóðnum í lok febrúar og verður öllum umsóknum svarað um mánaðarmótin febrúar/mars.
10.1.2012
Skilafrestur umsókna í Þróunarsjóð framlengdur
Vegna mikils álags á umsóknarkerfi Nýsköpunarmiðstöðvar og bilunar hefur kerfið legið niðri frá hádegi í dag. Skilafrestur umsókna er því framlengdur til kl. 16:00 miðvikudaginn 11. janúar. Umsækjendur eru hvattir til að reyna að senda umsóknir sínar inn í dag og kvöld til að dreifa álagi á kerfið. Frekari upplýsingar veitir Sigurður Steingrímsson í síma 894 9330 og Sigríður Kristjánsdóttir í síma 861 4913.
12.12.2011
99 umsóknir í starf verkefnisstjóra handleiðslu
Auglýst var eftir verkefnisstjóra handleiðslu hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð í nóvember síðastliðnum og rann umsóknarfrestur út þann 29. nóvember. Alls bárust 99 umsóknir og er verið að meta þær. Haft verður samband við þá, sem kallaðir verða til fyrstu viðtala nú í vikunni, en viðtöl munu fara fram strax eftir hátíðarnar.
24.10.2011
Líf og fjör hjá ungum frumkvöðlum í Fab Lab í Eyjum
27.6.2011
Frumkvöðlastuðningur - næsti umsóknarfrestur 15. ágúst
Verkefnið Frumkvöðlastuðningur er alltaf opið til umsóknar en úthlutun um mánaðarmótin júlí og ágúst fellur niður vegna sumarleyfa. Næsti umsóknarfrestur er því mánudaginn 15. ágúst og verða þær umsóknir sem berast fyrir þann tíma afgreiddar í lok ágúst mánaðar.
24.6.2011
109 milljónum króna úthlutað til atvinnusköpunar í sjávarbyggðum
Styrkjum hefur verið úthlutað úr verkefninu Atvinnusköpun í Sjávarbyggðum, sem byggir á tekjum af svokölluðum skötuselspeningum, þ.e. sölu aflaheimilda fiskveiðiárin 2009/2010 og 2010/2011 til að veiða skötusel og til frístundaveiða, sbr. lög um stjórn fiskveiða. Mikill áhugi var á verkefninu en alls bárust 123 umsóknir víðsvegar af landinu. Eftir umfjöllun stjórnar Atvinnusköpunar í sjávarbyggðum var gerð tillaga um að styrkja 32 verkefni, sem var í framhaldinu staðfest af iðnaðarráðherra. Áhersla var lögð á að styðja verkefni sem fela í sér nýsköpun, þekkingaryfirfærslu og hugverk sem byggja á styrkleikum sjávarbyggða. Ennfremur var horft til þess að styrkja stærri samstarfsverkefni fyrirtækja, háskóla og rannsóknarstofnanna þar sem fram komu skýrar hugmyndir um afurðir í formi vöru eða þjónustu sem skila varanlegum verðmætum og atvinnu.
17.5.2011
28 Brautargengiskonur bætast í hópinn – fjöldi nýrra fyrirtækja í farvatninu
Þann 11. og 12. maí sl. luku 28 konur námskeiðinu Brautargengi í Reykjanesbæ og á Akureyri. Þessar konur hafa undanfarnar 15 vikur unnið að viðskiptahugmyndum sínum sem miða að atvinnusköpun í heimabyggð og voru hugmyndir þátttakenda fjölbreyttar að vanda - ferðaþjónusta, hönnun, ráðgjöf og ýmiskonar þjónusta.
20.4.2011
Átaki til atvinnusköpunar - svör veitt eftir páska
Svör við umsóknum um Átak til atvinnusköpunar verða send út eftir páska.
11.3.2011
Atvinnusköpun í sjávarbyggðum
Iðnaðarráðuneyti í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands auglýsir eftir umsóknum í styrki til verkefnisins
Atvinnusköpun í sjávarbyggðum. sem byggja á tekjum af sölu aflaheimilda fiskveiðiárin 2009/2010 og 2010/2011 til að veiða skötusel og til frístundaveiða, sbr. lög um stjórn fiskveiða.
Atvinnusköpun í sjávarbyggðum er tímabundinn verkefnasjóður sem hefur það að markmiði að skapa varanleg störf, efla atvinnusköpun og auka fjölbreytni atvinnulífs í sjávarbyggðum.
Áhersla verkefnisins er á hagnýtingu nýrra hugmynda og leitast verður eftir því að styðja verkefni sem fela í sér nýsköpun, þekkingaryfirfærslu og hugverk. Stuðningur getur m.a. falist í viðskipta- og vöruþróun, markaðssókn og erlendri markaðsfærslu.









