Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Impru á Nýsköpunarmiðstöð

20.10.2005

Rannsóknir og nýsköpun er framtíðin

Allir sem hafa staðið í rannsóknar og þróunarverkefnum vita að nauðsynlegt er að horfa út fyrir landssteinana þegar kemur að því að hagnýta niðurstöður sem verða til við rannsóknirnar.  Samvinna við önnur lönd gefur einnig aukna vídd í rannsóknar og þróunarferlið.  Impra Nýsköpunarmiðstöð aðstoðar íslenskfyrirtæki, stofnanir og háskóla við að komast í samstarf við evrópska aðila á sviði rannsókna, þróunar og nýsköpunar.

Sem aðili að IRC netverkinu, getur Impra komið tæknitilboðum og tæknióskum íslenskra aðila á framfari við 33 lönd í Evrópu.  Íslensk fyrirtæki eru nú í auknum mæli að nýta sér þessa þjónustu enda farin að sjá sér hag í því. 

Fyrirtækið IntelScan hefur um tíma notað þessa þjónustu.  IntelScan þróaði  rakamæli sem mælir rakainnihald vöru á framleiðslulínunni án þess að þurfi að stoppa framleiðslu eða eyðileggja sýnið.  Starfsmenn Impru skrifuðu tæknitilboð í samvinnu við fyrirtækið, þar sem IntelScan óskaði eftir aðilum sem hefðu hug á að kaupa tæknina og hagnýta hana í sinni framleiðslu.  Tæknitilboðið fékk töluverða athygli.  Áhugaverðasti samningurinn sem IntelScan gerði í kjölfarið var við matvælarisann Nestlé, en hann mun nota rakmæli IntelScan við framleiðslu á gæludýrafóðri. 

Lystadún Snæland hefur einnig nýtt sér þjónustu Impru með góðum árangri.  Þeir  fengu sendar upplýsingar frá Impru um belgíska rúmuppfinningu, þar sem rúmdýnan er aðlöguð sérstaklega að hverjum og einum með aðstoð tölvu á þann hátt að viðskiptavinurinn leggst í rúm í versluninni þar sem tölva tekur niður nauðsynlegar upplýsingar og aðlagar dýnuna sérstaklega að kaupandanum.

IRC netverkið hefur verið starfrækt frá árinu 1995 og aðstoðað yfir 40.000 fyrirtæki vítt og breitt um Evrópu.  Netverkið er stærsta netverk sinnar tegundar í heiminum og hefur það megin markmið að styðja við og stuðla að nýsköpun og tækniyfirfærslu.  Fyrirtæki jafnt og stofnanir geta nýtt sér netverkið til að finna áhugaverða samstarfsaðila á sviði nýsköpunar.  Á heimasíðu Impru er að finna gagnagrunn með tugum tæknitilboða og tæknióska frá aðilum innan Evrópu sem eru að leita eftir samstarfsaðilum.  Það er því full ástæða fyrir fyrirtæki og rannsóknaraðila að skoða gangabankann reglulega til að fylgjast með þeirri þróun sem á sér stað á flestum sviðum atvinnulífsins.  Í gagnabankanum er hægt að leita eftir ákveðnum atvinnuflokkum eða leitarorði.

Starfsmenn Evrópumiðstöðvar Impru veita allar frekari upplýsingar og aðstoða íslenska aðila við að hagnýta sér þessa þjónustu. 

www.evropumidstod.is

Sími: 570 7100

Rannísblaðið, 20. október 2005


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica