Fréttir Impru á Nýsköpunarmiðstöð
8.1.2007
Vaxtarsamningur Austurlands undirritaður þann 4. janúar 2007
Þann 4. janúar 2007 skrifaði Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra undir Vaxtarsamning Austurlands á Hótel Héraði Egilsstöðum að viðstöddu fjölmenni.
Um er að ræða fimmta vaxtarsamninginn sem iðnaðarráðherra undirritar.
Markmiðið með samningnum er að efla Austurland sem eftirsóttan valkost til búsetu og auka samkeppnishæfni svæðisins. Samningurinn byggist á aðferðum við að styrkja hagvöxt einstakra svæða með uppbyggingu klasa. Kjarni aðferðarinnar felst í að styrkja sjálfbæran hagvöxt viðkomandi svæðis með markaðstengdum áherslum. Lögð er m.a. áhersla á klasa á sviði matvælaframleiðslu, mennta og rannsókna og menningar og ferðaþjónustu.
Aðilar samningsins eru 55 talsins. Auk iðnaðarráðuneytisins eru það sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir og skólar. Samningurinn er til 3 ára.
Í ágúst 2005 skipaði þáverandi iðnaðarráðherra verkefnisstjórn til að annast stefnumörkun í byggðamálum Austurlands með því að gera tillögu að “Vaxtarsamningi fyrir Austurland”. Samningurinn byggist í aðalatriðum á niðurstöðum verkefnistjórnarinnar.









