Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Impru á Nýsköpunarmiðstöð

24.1.2007

SPROTAÞING 2007 - Staða og starfsskilyrði sprota- og hátæknifyrirtækja í brennidepli á þingi stjórnmálaflokka, stoðkerfis og atvinnulífs

Í samstarfi við þingflokka stjórnmálaflokka, ráðuneyti iðnaðar-, viðskipta- og menntamála, háskóla og aðila stoðkerfis og atvinnulífs efna SI og aðildarfélög til Sprotaþings 2007 föstudaginn 2. febrúar nk. Á þinginu verður fjallað um stöðu og starfsskilyrði sprota- og hátæknifyrirtækja á Íslandi og tillögur þingheims lagðar fram til afgreiðslu. Sprotaþing 2007 markar einnig upphaf Sprotavettvangs sem formlega hefur störf í kjölfarið.

Á Sprotaþingi munu þingflokkar leggja fram tillögur að frumvörpum og/eða breytingar á reglugerðum er varðar starfsskilyrði sprota- og hátæknifyrirtækja á Íslandi. Fjallað verður um tillögurnar í nefndum og þær afgreiddar á þinginu. Áhugavert verður að fylgjast með niðurstöðum þingsins enda mikið í húfi fyrir jafnt atvinnulíf og hið opinbera.

Fösturdaginn 2. febrúar frá kl. 12:30 - 17:15 í  íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal.

              

Frekari upplýsingar og skráning hér


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica