Fréttir Impru á Nýsköpunarmiðstöð
1.4.2008
Skemmtileg Brautargengishelgi að baki
Um síðastliðna helgi hittust Brautargengishóparnir frá Akureyri, Hellu og Ísafirði í Nesbúð og dvöldu yfir nótt. Var þetta síðari helgi námskeiðsins þar sem hóparnir koma saman með það að markmiði að fræðast enn frekar og eins að kynnast öðrum athafnakonum. Mjög fín mæting var frá öllum kennslustöðum og myndaðist góð stemning meðal þátttakenda eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Framundan hjá hópunum eru millikynningar og í næstu viku hefst síðasta lota námskeiðsins sem lýkur með útskrift í vor.









