Fréttir Impru á Nýsköpunarmiðstöð
9.4.2008
Markáætlun 2009-2015: Öndvegissetur og rannsóknaklasar
Kynning á Hótel Sögu, mánudaginn 14. apríl kl. 9:00 til 10:30.
Ný markáætlun á vegum Vísinda- og tækniráðs hefur göngu sína árið 2009. Auglýst hefur verið eftir hugmyndum að öndvegissetrum og rannsóknaklösum. Frestur til að skila hugmyndum rennur út þriðjudaginn 13. maí. Tíu hópar fá 1.000.000 kr. til að þróa hugmyndir og senda inn sem fullbúnar umsóknir í október 2008. Gerð er krafa um víðtækt samstarf fyrirtækja, háskóla og rannsóknastofnana bæði innanlands og út fyrir landsteinana. Hugmyndir verða m.a. metnar samkvæmt því hversu vel þær samrýmast áherslum Vísinda- og tækniráðs sem voru samþykktar í desember 2007.
Mánudaginn 14. maí standa Rannís og Impra fyrir kynningu á markáætluninni á Hótel Sögu frá klukkan 9 til 10:30. Morgunverður í boði. Kynningin fer fram í Harvard (gamla Ársal).
Kynningin er öllum opin en nauðsynlegt er að skrá hér.









