Fréttir Impru á Nýsköpunarmiðstöð
15.1.2010
Kynningarfundur um öndvegisrannsóknastyrki vel sóttur
Rannís og Nýsköpunarmiðstöð Íslands stóðu fyrir opnum kynningarfundi um Öndvegisrannsóknaráætlun Norðurlanda (Toppforskningsinitiativet) á sviði loftlags-, orku- og umhverfismála miðvikudaginn 13. janúar sl. á Grand Hótel Reykjavík. Fundurinn var vel sóttur og fundargestir mjög áhugasamir.
Áætlunin er stærsta samnorræna átakið á þessu sviði nokkru sinni og eru umsóknarfrestir í febrúar og mars. Í áætluninni eru fólgin mikil tækifæri fyrir íslenskt vísindafólk á þessum sviðum. Frekari upplýsingar um áætlunina má finna á http://www.toppforskningsinitiativet.org/
Dagskrá fundarins og glærur frá fyrirlestrum:
- Kynning á Öndvegisrannsóknaráætluninni - Hallgrímur Jónasson, RANNÍS
- Undiráætlun um aðlögun að loftslagsbreytingum og rannsóknir á áhrifum þeirra - María Hildur Maack, Íslensk NýOrka
- Undiráætlun um víxlverkanir milli loftslagsbreytinga og freðhvolfs jarðar - Kristján Kristjánsson, Háskólinn í Reykjavík
- Undiráætlun um föngun og geymslu CO2 - Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, Orkustofnun
- Undiráætlun um orkunýtni með örtækni - Edda Lilja Sveinsdóttir, REYST og Orkuveita Reykjavíkur
- Aðstoð og stuðningur við umsækjendur - Kjartan Due Nielsen, Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Hægt er að hafa samband við fulltrúa í stýrihópum undiráætlanna sem finna má hér. Auk þess býðst ráðgjöf og stuðningur við umsóknaskrif og myndun tengslaneta hjá Kjartani Due Nielsen á kjartan@nmi.is og í síma 522-9246









